Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárþing ytra
Undirritunardagur
28. september 2026
Útgáfudagur
12. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1083/2026
28. september 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna íbúðarbyggðar á Hellu.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 28. september 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. júlí 2026.
Í breytingunni felst stækkun á íbúðarbyggð ÍB16 á Hellu sem nemur einni lóð, Útskálum 1. Samfélagsþjónusta S11 minnkar samsvarandi.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 28. september 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 12. október 2026