Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
13. nóvember 2025
Útgáfudagur
14. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1177/2025
13. nóvember 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1200/2019, um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands.
1. gr.
Við 1. mgr. 10. gr. reglnanna bætist nýr töluliður, sem verður 9. tölul., svohljóðandi:
- Skuldabréf í íslenskum krónum gefin út af alþjóðlegum fjármálastofnunum sem Ísland á aðild að (e. International financial institution, IFI) og sem njóta fullnægjandi eigendaábyrgðar og lánshæfis að mati Seðlabankans.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 1. mgr. 19. gr. og 2. mgr. 46. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, taka þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 13. nóvember 2025.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 14. nóvember 2025