Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Kópavogsbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Kópavogur
Undirritunardagur
17. ágúst 2026
Útgáfudagur
17. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 895/2026
17. ágúst 2026
AUGLÝSING
um afgreiðslu Kópavogsbæjar á tillögu að breyttu deiliskipulagi.
Dalsmári 1. Breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Kópavogs 13. júlí 2026, með vísan til heimilda skipulagsfulltrúa skv. 3. tl. 3. gr. í viðauka IV í samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024, breytingu á deiliskipulagi Kópavogsdals, útivistarsvæðis, fyrir lóðina nr. 1 við Dalsmára. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir núverandi færanlegar skólastofur stækkar til norðausturs um 19,7 m x 22 m svo hægt sé að koma fyrir 135,1 m² færanlegri skólastofu. Fyrirhuguð skólastofa er á einni hæð með flötu þaki. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi verður um 3,06 m. Að öðru leyti er vísað til gildandi skilmála.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.
Kópavogi, 17. ágúst 2026.
Auður D. Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 17. ágúst 2026