Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
26. maí 2026
Útgáfudagur
9. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 646/2026
26. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Merkurnámu E57.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 26. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. maí 2026.
Í breytingunni felst að efnistökusvæði E57 er stækkað úr 2 ha í 13,9 ha og heimilað efnismagn eykst úr 50.000 m³ í 450.000 m³. Óbyggt svæði minnkar samhliða.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 26. maí 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026