Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara

Málaflokkur

Flutningar, Eldsneyti

Undirritunardagur

17. nóvember 2020

Útgáfudagur

19. nóvember 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1121/2020

17. nóvember 2020

AUGLÝSING

um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.

Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. desember 2020 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:

Bifreiðabensín 0,10 kr. á lítra
Gasolía 0,60 kr. á lítra
Aðrar olíur og blöndur til brennslu 0,00 kr. á kg
Flugsteinolía (þotueldsneyti) 0,30 kr. á lítra
Flugvélabensín 0,00 kr. á lítra

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Innheimtumenn ríkissjóðs annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins.

Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1219/2019.

Byggðastofnun, 17. nóvember 2020.

Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.

Arnar Már Elíasson,
formaður stjórnar
Flutningsjöfnunar-
sjóðs olíuvara.

B deild - Útgáfud.: 19. nóvember 2020

Tengd mál