Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Strandabyggð

Málaflokkur

Landbúnaður, Strandabyggð

Undirritunardagur

8. september 2026

Útgáfudagur

8. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1074/2026

8. september 2026

SAMÞYKKT

um búfjárhald í Strandabyggð.

1. gr.

Samþykkt þessi er sett til að tryggja skipulag, stjórnun og eftirlit með búfjárhaldi í Strandabyggð. Sveitarstjórn fer með framkvæmd þessarar samþykktar.

2. gr.

Með búfé í samþykkt þessari er átt við alifugla, geitfé, hross, kanínur, loðdýr, nautgripi, sauðfé og svín, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga um búfjárhald, nr. 38/2013. Búfjárhald utan lögbýla er óheimilt án leyfis sveitarstjórnar Strandabyggðar.

3. gr.

Sá sem hyggst sækja um leyfi til búfjárhalds samkvæmt 2. mgr. 2. gr. skal senda skriflega umsókn til sveitarstjórnar Strandabyggðar. Í umsókninni skal tilgreina tegund og fjölda búfjár, húsakost og annað er máli kann að skipta um öryggi þess og vörslu. Telji sveitarstjórn að umsækjandi uppfylli þau skilyrði, sem krafist er samkvæmt gildandi lögum og stjórnvaldsreglum, veitir hún leyfið. Leyfið er gefið út á nafn og er ekki framseljanlegt. Um leyfið gilda ákvæði samþykktar þessarar. Leyfið er uppsegjanlegt með eins árs fyrirvara miðað við 15. júní ár hvert. Ef leyfishafi brýtur ítrekað gegn lögum um búfjárhald, nr. 38/2013, eða samþykkt þessari, má svipta hann leyfi til búfjárhalds með þriggja mánaða fyrirvara. Heimilt er að halda allt að 10 hænsni á lóð hverju sinni. Þó eru hanar með öllu bannaðir utan lögbýla. Hænsnin skulu vera í öruggu gerði.

4. gr.

Allt búfé skal merkt í samræmi við reglugerð um merkingar búfjár, nr. 916/2012. Óheimilt er að halda búfé, nema hafa fyrir það hús og/eða skjól sem samræmist reglugerðum um velferð búfjár. Sama gildir um allt umhverfi húsanna og annars aðbúnaðar. Búfjáreigandi ber ábyrgð á því að hann hafi beitiland og fóður fyrir allt sitt búfé og hann skal tryggja góða meðferð þess. Gangi búfé úti á vetrarbeit skal umráðamaður þess ábyrgjast nægilegt fóður, vatn, viðunandi skjól og örugga vörslu.

5. gr.

Lausaganga stórgripa er bönnuð í Strandabyggð. Umráðamönnum stórgripa í sveitarfélaginu er skylt að hafa þá í vörslu innan gripaheldra girðinga, sbr. reglugerð um girðingar, nr. 748/2002. Nú verður stórgripa vart utan vörslugirðinga og skal þá sveitarfélagið gefa umráðamanni, sé vitað hver hann er, kost á að handsama búfénaðinn innan tveggja sólarhringa, en skal að öðrum kosti sjá til þess að láta handsama gripina og færa í örugga vörslu. Umráðamanni skal tilkynnt um gripi sína og gert að sækja þá og greiða áfallinn kostnað, svo sem vegna tjóns eða kostnað við handsömun skv. 24. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Um ráðstöfun gripa fer eftir lögum um velferð dýra, nr. 55/2013.

6. gr.

Eignasjóður Strandabyggðar heldur skrá yfir land í eigu Strandabyggðar sem leigt er eða lánað til beitar og/eða ræktunar. Umráðamenn búfjár eða aðrir aðilar sem hafa slíkt land frá sveitarfélaginu skulu, setji sveitarfélagið þá skilmála, hafa landið girt gripheldri girðingu, sem nauðsynleg er til vörslu þeirra gripa sem innan eða utan hennar eiga að vera. Umsóknum um land til beitar eða ræktunar skal skila til sveitarstjórnar, sem úthlutar landi að fenginni tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar.

7. gr.

Ætli landeigandi að friða afmarkaða landspildu fyrir ágangi búfjár skal hann tilkynna sveitarstjórn það. Jafnframt skal landeigandi framvísa umsögn Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda, þar sem fram kemur að girðing um spilduna sé gripheld og friðun sé raunhæf. Sveitarstjórn skal auglýsa umrædda friðun í samræmi við 8. gr. laga nr. 38/2013. Umráðamaður lands skal fyrir 15. júní ár hvert framvísa til sveitarstjórnar umsögn Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda um að vörslulínan sé fullnægjandi, að öðrum kosti fellur friðun úr gildi. Landeigandi ber allan kostnað af úttektinni.

8. gr.

Komist búfé inn á friðað svæði, sbr. 11. gr., skal umráðamaður lands ábyrgjast handsömun þess og koma því í örugga vörslu. Skal hann þá þegar kanna hver er réttur umráðamaður handsamaðs búfjár og tilkynna honum þegar í stað hvar búféð er. Hafi umráðamaður búfjár ekki fundist eða sinnt fyrirmælum um að sækja búféð innan tveggja sólarhringa frá tilkynningu er umráðamanni lands heimilt að afhenda sveitarfélaginu dýrin. Umráðamaður búfjár ber kostnað af handsömun búfjárins samkvæmt gildandi gjaldskrá skv. 24. gr. laga nr. 55/2013. Umráðamaður lands ber ábyrgð á því að búfé  hafi nægilegt fóður og vatn á meðan það er í vörslu hans. Sveitarstjórn og umráðamaður lands eiga lögveð í búfénu fyrir sannanlegum kostnaði skv. lögum um búfjárhald, nr. 38/2013.

9. gr.

Um fjallskil í Strandabyggð fer eftir lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986, svo og gildandi fjallskilasamþykkt Strandabyggðar.

10. gr.

Með mál út af brotum skal farið samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Samþykkt þessi, sem samþykkt var af sveitarstjórn Strandabyggðar 8. september 2026, staðfestist hér með skv. 4. gr. laga um búfjárhald, nr. 38/2013, til þess að öðlast gildi við birtingu.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þeir sem við gildistöku þessarar samþykktar, eiga eða hafa í umsjón sinni búfé utan lögbýla, fá leyfi til að halda þeim gripafjölda er þeir þegar hafa, uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði samþykktarinnar.

Þeir skulu tilkynna búfjárhald sitt til sveitarstjórnar Strandabyggðar innan tveggja mánaða frá gildistöku þessarar samþykktar.

Strandabyggð, 8. september 2026.

Hrafnhildur Þorsteinsdóttir oddviti.

B deild — Útgáfudagur: 8. október 2026

Tengd mál