Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

22. júní 2026

Útgáfudagur

7. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 767/2026

22. júní 2026

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, nr. 525/2021.

1. gr.

1. mgr. 8. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo: Sveitarstjórn heldur reglulega fundi sína tvisvar sinnum í mánuði í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Í upphafi hvers kjörtímabils skal sveitarstjórn ákveða fundardaga og fundartíma sveitarstjórnar fyrir kjörtímabilið. Bæjarstjórn er heimilt að breyta fundartíma eða fundarstað sínum, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust.

2. gr.

Í stað orðanna „aðal- og varafulltrúa á aðalfund“ í 3. tl. C. liðar 48. gr. samþykktarinnar kemur: einn fulltrúa í kjörnefnd.

3. gr.

Við C-lið 48. gr. samþykktarinnar bætast fimm nýir töluliðir, svohljóðandi:

Svæðisskipulagsnefnd sveitarfélaganna á Vestfjörðum: Bæjarstjórn kýs tvo fulltrúa í svæðisskipulagsnefnd sveitarfélaganna á Vestfjörðum samkvæmt starfsreglum nefndarinnar.

Farsældarráð Vestfjarða: Bæjarstjórn kýs einn aðalfulltrúa og einn varafulltrúa í farsældarráð Vestfjarða, sbr. 5. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021. Auk þess kýs bæjarstjórn einn aðalfulltrúa og einn varafulltrúa í stjórn ráðsins.

Stjórn Lýðskólans á Flateyri: Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa í stjórn Lýðskólans á Flateyri, í samræmi við samþykktir Lýðskólans.

Úrgangsráð Vestfjarða: Bæjarstjórn kýs einn aðalfulltrúa og einn varafulltrúa í úrgangsráð Vestfjarða, í samræmi við svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum 2024-2035.

Framkvæmdasjóður Skrúðs: Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa í Framkvæmdasjóð Skrúðs, í samræmi við skipulagsskrá sjóðsins.

4. gr.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 22. júní 2026.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2026

Tengd mál