Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skatturinn
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
10. desember 2025
Útgáfudagur
30. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1560/2025
10. desember 2025
AUGLÝSING
ríkisskattstjóra um skil á skattframtölum og skilamáta skattframtala vegna álagningar opinberra gjalda á árinu 2026 á tekjur ársins 2025 og upplýsinga um eignir og skuldir í lok þess árs.
Skilafrestir.
1. gr.
Framtölum einstaklinga skal skila rafrænt til Skattsins eigi síðar en 13. mars 2026 á vefsíðunni skattur.is. Hið sama á við um skil á framtölum vegna þeirra einstaklinga sem látist hafa á árinu 2025.
2. gr.
Framtalsskyldir lögaðilar skulu skila framtali rafrænt á vefsíðunni skattur.is. Stærri lögaðilar skulu skila eigi síðar en 31. maí 2026, og sama á við um minni lögaðila, sem ekki eru skráðir á skilalista fagaðila sem annast mun skil á skattframtali þeirra. Skattframtölum fyrir dánarbú, þar sem skiptum hafði ekki verið formlega lokið í árslok 2024, skal skila til Skattsins eigi síðar en 31. maí 2026.
Fagaðilum sem annast framtalsskil fyrir minni lögaðila samkvæmt skráningu viðskiptamanna á skilalista á vef Skattsins er heimilt á árinu 2026 að skila skattframtölum umbjóðenda sinna allt til 21. september á því ári, enda sé skattframtölum skilað jöfnum höndum, sbr. 5. gr. Með minni lögaðilum er átt við lögaðila sem eru með veltu undir 1.000 milljónum kr. og eignir undir 500 milljónum kr. Til stærri lögaðila teljast því eðli máls samkvæmt þeir sem eru yfir framangreindum mörkum. Gera skal grein fyrir rekstri sameignar-, samlags- og samlagshlutafélaga, sem eru ósjálfstæðir skattaðilar, með framtölum eigenda.
Skráningu á viðskiptamönnum fagaðila á skilalista skal lokið á vef Skattsins fyrir 1. apríl 2026.
3. gr.
Þeir lögaðilar, sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið, skulu skila framtali rafrænt á vefsíðunni skattur.is eigi síðar en 5 mánuðum eftir lok reikningsárs.
4. gr.
Þeir framteljendur sem af óviðráðanlegum ástæðum geta ekki skilað framtali sínu innan ofangreindra fresta, svo sem vegna veikinda eða tilfallandi dvalar erlendis, skulu skila framtali sínu svo fljótt sem auðið er, rafrænt á vefsíðunni skattur.is, og gera grein fyrir ástæðum síðbúinna skila með athugasemd á skattframtalinu.
5. gr.
Skil endurskoðenda, lögmanna, viðurkenndra bókara eða fyrirtækja fagaðila, sem í atvinnuskyni annast bókhald og framtalsskil fyrir viðskiptavini sína, sæta sérstökum skilmálum, sem birtir eru fagaðilum árlega. Skilmálar þessir um skil umfram almenna fresti ráðast m.a. af fyrri efndum og taka þannig einungis til þeirra aðila sem stóðu við jöfn og reglubundin skil skattframtala fyrir lok skilafrests á fyrra ári. Með jöfnum skilum er átt við jöfn skil frá upphafsdegi skila til lokadags, þ.e. 1. febrúar til 21. september 2026. Áréttað skal að hámark skila í júlí og ágúst skal aldrei fara fram úr 20% hvorn mánuð fyrir sig. Þá mega skil í september ekki fara fram úr 20%. Veruleg frávik frá settum skilmálum leiða til þess að viðkomandi fagaðili - óháð breytingu á því rekstrarformi sem starfað er undir - fær ekki framlengdan frest til skila ári síðar. Fagaðili, sem brotið hefur skilmála við skil á fyrra ári, er því bundinn af því að skila skattframtölum viðskiptavina sinna í almennum skilafresti á næstkomandi álagningarári, ella munu þau framtöl teljast of seint framkomin og sæta því eftir atvikum kærumeðferð skv. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
Form og skilamáti framtala.
6. gr.
Einstaklingar skulu gera grein fyrir tekjum sínum á árinu 2025 og eignum í lok þess árs með eftirfarandi hætti á skattframtali 2026:
- Á rafrænu skattframtali 2026 (RSK 1.01) á þjónustusíðu á vefsíðunni skattur.is.
- Með dulrituðu og undirrituðu skeyti úr framtalsforritum 2026, sem vottuð hafa verið af Skattinum.
- Á skattframtali 2026 (erlendir starfsmenn) RSK 1.10 (enska) eða RSK 1.13.
Rafrænu skattframtali einstaklings í atvinnurekstri skal fylgja ársreikningur auk tilskilinna rafrænna fylgiskjala, sbr. 7. gr.
7. gr.
Einstaklingar, sem stunduðu atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi á árinu 2025, skulu með skattframtali sínu 2026 gera grein fyrir tekjum sínum og eignum tengdum rekstri á neðangreindum formum er fylgja skulu skattframtali 2026:
- Séu tekjur (velta) undir 2.000.000 kr. og eignir í rekstri engar eða óverulegar og framteljandi var jafnframt ekki með virðisaukaskattsnúmer á árinu 2025 skal skila rekstraryfirlitinu RSK 4.10.
- Sé velta á bilinu 2.000.000 til 30.000.000 kr. skal skila rekstrarskýrslu RSK 4.11 ásamt viðeigandi fylgiskjölum, enda sé ekki um að ræða samrekstur, fráviksaðferðir í reikningshaldi eða byggingarstarfsemi, þar sem beitt er verklokaaðferð. Réttilega útfyllt rekstraryfirlit RSK 4.11, sem uppfyllir jafnframt öll skilyrði III. kafla laga um bókhald, telst fullnægjandi ársreikningur í þessu tilliti. Sé eðli starfseminnar hins vegar þannig að sundurliðun á tekjum, gjöldum, eignum og skuldum samkvæmt RSK 4.11 gefi ekki skýra mynd af henni, s.s. sundurliðun helstu tekna- og kostnaðarliða, skal sérstakur ársreikningur fylgja framtali ásamt RSK 4.11.
- Sé velta yfir 30.000.000 kr. eða um er að ræða samrekstur, fráviksaðferðir í reikningshaldi eða byggingastarfsemi, þar sem beitt er verklokaaðferð, skal skila rekstrarframtali RSK 1.04 ásamt ársreikningi og viðeigandi rafrænum fylgiskjölum.
- Ef einstaklingur á eignarhlut eða er ráðandi aðili í félagi í lágskattaríki (CFC), skal gera grein fyrir slíkum eignarhlut og tekjum af honum á sérstakri skýrslu, RSK 4.25, í framtalsskilunum.
- Ef maður gerir út skip eða bát, sem stundar fiskveiðar, skal gera grein fyrir aflaverðmæti og aflamagni pr. fisktegund og heildarkostnaði við útgerð viðkomandi skips eða báts á sérstöku yfirliti, RSK 4.29, í framtalsskilunum.
8. gr.
Vegna búrekstrar skulu neðangreindar skýrslur fylgja rafrænu skattframtali einstaklings eða lögaðila:
- Skattframtali einstaklings skal fylgja landbúnaðarskýrsla RSK 4.08, í stað RSK 1.04 eða RSK 4.11.
- Skattframtali lögaðila RSK 1.04, sbr. 9. gr., skal fylgja yfirlit vegna landbúnaðar RSK 4.07.
9. gr.
Lögaðilar skulu gera grein fyrir tekjum sínum á árinu 2025 og eignum í lok þess árs með eftirfarandi hætti:
- Á rafrænu skattframtali 2026 (RSK 1.04) á þjónustusíðu á vefsíðunni skattur.is.
- Með dulrituðu og undirrituðu skeyti úr framtalsforritum 2026, sem vottuð hafa verið af Skattinum.
- Félög, sjóðir og stofnanir skv. 5. tölul. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sem ekki stunda atvinnurekstur í hagnaðarskyni eða eru ekki á félagaformi atvinnurekstrar eiga að skila skattframtali RSK 1.06, ef þau hafa:
- óuppgerðan fjármagnstekjuskatt,
- starfsmenn á launum,
- stundað virðisaukaskattsskylda starfsemi á árinu 2025.
- Lögaðilar, sem stunda atvinnurekstur í hagnaðarskyni eða eru á félagaformi atvinnurekstrar, en eru undanþegnir skattskyldu skv. 4. tölul. 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, (verja öllum hagnaði til almannaheilla), skulu skila skattframtali á forminu RSK 1.04, ásamt ársreikningi.
- Þeir lögaðilar sem eiga í viðskiptum við tengda aðila (e. transfer pricing) og falla undir ákvæði um skjölunarskyldu skv. 5. mgr. 57. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu staðfesta skjölunarskylduna og skila með framtalinu forminu RSK 4.28.
- Framteljandi sem á eignarhlut eða er ráðandi aðili í félagi í lágskattaríki (CFC), skal gera grein fyrir slíkum eignarhlut og tekjum af honum á sérstakri skýrslu, RSK 4.25, í framtalsskilunum.
- Framteljandi sem gerir út skip eða bát, sem stundar fiskveiðar, skal gera grein fyrir aflaverðmæti og aflamagni pr. fisktegund og heildarkostnaði við útgerð viðkomandi skips eða báts á sérstöku yfirliti, RSK 4.29, í framtalsskilunum.
Ársreikningi með skýringum og sundurliðunum ásamt öðrum tilskildum fylgiskjölum lögaðila skal skilað rafrænt með skattframtali sem fylgiskjal. Skylda til að skila ársreikningi með skattframtali tekur þó ekki til þeirra örfélaga, sem nýta sér heimild til að skila efnahags- og rekstraryfirliti til ársreikningaskrár skv. 1. gr. reglugerðar nr. 974/2016, um framsetningu og innhald ársreikninga örfélaga byggt á skattframtölum („Hnappurinn“).
10. gr.
Auglýsing þessi er birt skv. 90. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og tekur þegar gildi.
Reykjavík, 10. desember 2025.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025