Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármálaeftirlitið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

18. október 2017

Útgáfudagur

14. nóvember 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 965/2017

18. október 2017

REGLUR

um breytingu á reglum um tæknilega staðla varðandi upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja, nr. 506/2017.

1. gr.

Við 2. gr. reglnanna bætist ný málsgrein og verður 4. mgr., svohljóðandi:

Fjármálafyrirtæki skal birta upplýsingar um vogunarhlutfall sem koma fram í reglugerð (ESB) 2016/200 frá 15. febrúar 2016, með þeim hætti og með þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerðinni.

2. gr.

Við 1. mgr. 3. gr. reglnanna bætist nýr töluliður og verður 4. töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/200 frá 15. febrúar 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi birtingu upplýsinga um vogunarhlutfall fjármálafyrirtækja, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 2. mgr. 3. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1555“ kemur: og reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1555 og 2016/200.
  2. Við bætist nýr töluliður og verður 4. töluliður, svohljóðandi:
    1. http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1507300659508&uri=CELEX: 32016R0200, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 39, þann 16. febrúar 2016, bls. 5-25.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar með heimild í b-lið 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 18. október 2017.

Unnur Gunnarsdóttir.

Sigurður Freyr Jónatansson.

B deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2017

Tengd mál