Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

17. mars 2014

Útgáfudagur

2. apríl 2014

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 315/2014

17. mars 2014

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðanna „hnattrænna tengsla, fólksflutninga og fjölmenningarfræða“ í 27. og 28. mgr. 84. gr. kemur: hnattrænna tengsla.

2. gr.

Við upptalningu kennslugreina í 1. mgr. 94. gr. reglna nr. 569/2009, á eftir málsliðnum „Til MS-prófs í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum“, bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Til MS-prófs í nýsköpun og viðskiptaþróun.

3. gr.

Reglur þessar, sem rektor hefur samþykkt fyrir hönd háskólaráðs Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 17. mars 2014.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 2. apríl 2014

Tengd mál

Stjórnartíðindi