Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Grímsnes- og Grafningshreppur
Undirritunardagur
25. júní 2026
Útgáfudagur
14. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 805/2026
25. júní 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Ásgarður, L168229, breytt landnotkun, frístundabyggð verður landbúnaðarland.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Ásgarðs, L168229. Breytingin felst í niðurfellingu Sólbakka úr deiliskipulaginu. Felldar verða niður 11 lóðir við Sólbakka. Skipulagssvæðið minnkar úr 218 ha í 203 ha.
Samþykkt í sveitarstjórn 13. apríl 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 25. júní 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 14. júlí 2026