Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Garðabær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Garðabær

Undirritunardagur

12. október 2026

Útgáfudagur

12. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1085/2026

12. október 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 17. september 2026 eftirfarandi:

Arnarland – sameining lóða E, F, G og K – óveruleg breyting á deiliskipulagi.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

Lóðir E og F eru sameinaðar í eina lóð (EF) og stækkaðar. Byggingarreitur neðanjarðar breytist.

Göngutenging sem hlykkjast niður Landakur að Ósakri, sem áður lá milli lóða E og F, tilheyrir nú lóð EF. Yfirborð, umsjón og rekstur verða áfram á vegum Garðabæjar. Lóðir G og K eru sameinaðar í eina lóð (GK) og stækkaðar.

Byggingarreitur ofanjarðar (áður á lóð K) breytist, speglast og liggur meðfram Nesakri.

Byggingarreitur neðanjarðar breytist.

Aðkoma að bílakjallara færist.

Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að lóð spennistöðvar við Landakur flytjist til austur og er það í samræmi við tillögur gatnahönnuða og Veitna.

Að öðru leyti haldast almennir skilmálar óbreyttir.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

Garðabæ, 12. október 2026.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 12. október 2026

Tengd mál