Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Grunnskólar

Undirritunardagur

23. júní 2026

Útgáfudagur

7. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 770/2026

23. júní 2026

REGLUGERÐ

um skólaheilsugæslu.

I. KAFLIGildissvið, markmið og skipulag.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um skólaheilsugæslu grunnskólabarna.

2. gr. Markmið.

Markmið skólaheilsugæslu er að efla heilbrigði barna og stuðla að vellíðan þeirra. Skólaheilsugæsla skal tryggja að börn og fjölskyldur þeirra hafi aðgang að gagnreyndri heilbrigðisþjónustu í formi reglubundinna heilsufarsskoðana, heilbrigðisfræðslu, forvarna, ráðgjafar og heilsueflingar. Þjónustan skal taka mið af þörfum barna, fjölskyldna þeirra, skóla og samfélags á hverjum tíma.

3. gr. Skipulag þjónustunnar.

Heilbrigðisstofnanir í hverju heilbrigðisumdæmi bera ábyrgð á skipulagi skólaheilsugæslu innan viðkomandi heilbrigðisumdæmis. Embætti landlæknis hefur það hlutverk að þróa, leiða og samræma verklag með útgáfu leiðbeininga til heilbrigðisstofnana.

Skólaheilsugæslu skal sinnt af hjúkrunarfræðingum í þverfaglegu samstarfi við aðra heilbrigðisstarfsmenn heilsugæslu og aðra fagaðila sem koma að málefnum barna.

Mönnun skólaheilsugæslu skal taka mið af umfangi þjónustunnar og þörfum þeirra barna sem njóta hennar.

4. gr. Skráning þjónustunnar og meðferð gagna.

Heilbrigðisþjónusta á vegum skólaheilsugæslu og önnur heilbrigðisþjónusta sem heilbrigðisstarfsmenn veita í skólum skal skráð í sjúkraskrá í samræmi við lög um sjúkraskrár, nr. 55/2009.

Ópersónugreinanlegar upplýsingar um heilsufar og vellíðan barna, sem aflað er við heilsufarsskoðun, skulu nýttar við skipulagningu, þróun og mat á þjónustunni.

Samantektir slíkra upplýsinga skulu jafnframt nýttar til að greina þróun í heilsufari og vellíðan barna og meta hvort þörf sé á frekari aðgerðum til að bæta þjónustuna.

Embætti landlæknis skal reglulega meta gæði skólaheilsugæslu og veita heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum endurgjöf á grundvelli skilgreindra gæðavísa.

Heilbrigðisstofnun skal tryggja starfsmönnum skólaheilsugæslu aðgang að viðeigandi tölvubúnaði og sjúkraskrárkerfi.

5. gr. Samþætting þjónustu.

Í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, ber heilbrigðisstarfsmönnum að fylgjast með því að þörfum barna sé mætt, greina vísbendingar um þjónustuþarfir og bregðast við þeim. Komi í ljós að barnið þurfi frekari þjónustu en þegar er veitt, skulu heilbrigðisstarfsmenn veita barni og/eða foreldrum og forsjáraðilum leiðbeiningar um viðeigandi þjónustuúrræði og samþættingu þjónustu.

II. KAFLISkólaheilsugæsla grunnskólabarna.

6. gr. Hlutverk.

Hlutverk skólaheilsugæslu grunnskólabarna er að efla heilbrigði barna og stuðla að öryggi þeirra og vellíðan. Þjónustan skal að jafnaði veitt í skólum. Skólaheilsugæsla skal starfa í nánu samstarfi við skólayfirvöld, foreldra og forsjáraðila sem og aðra fagaðila sem koma að málefnum barna. Skólaheilsugæsla skal veitt samkvæmt leiðbeiningum embættis landlæknis.

Skólaheilsugæsla grunnskólabarna felur m.a. í sér að:

  1. Efla þekkingu og færni barna til að lifa heilbrigðu lífi með skipulagðri heilbrigðisfræðslu.
  2. Skima fyrir heilsuvanda og áhættuþáttum og vísa börnum til viðeigandi úrræða komi fram frávik við skimun.
  3. Efla geðheilbrigði barna með áherslu á geðheilbrigðisforvarnir, snemmtækan stuðning og viðeigandi viðbrögð.
  4. Draga úr útbreiðslu smitsjúkdóma með bólusetningum samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnalæknis.
  5. Veita fræðslu um kynheilbrigði og forvarnir gegn kynsjúkdómum.
  6. Veita fræðslu um sóttvarnir, skynsama notkun sýklalyfja og sýklalyfjaónæmi.
  7. Stuðla að því að langveik og fötluð börn njóti viðeigandi aðstæðna og umönnunar í skóla í samstarfi við foreldra og forsjáraðila þeirra og starfsfólk skóla.
  8. Veita starfsfólki skóla fræðslu og leiðsögn um heilsufarsþarfir barna eftir því sem við á þar með talið um alvarlega sjúkdóma eða önnur heilsufarsfrávik sem geta krafist sérstakra viðbragða eða stuðnings í skólastarfi.
  9. Stuðla að samstarfi fagaðila sem koma að málefnum barna.

7. gr. Heilsufarsskoðanir.

Skólaheilsugæsla skal skipuleggja reglulegar heilsufarsskoðanir fyrir börn í fyrir fram skilgreindum aldurs- eða árgangshópum eða öðrum sambærilegum hópum. Jafnframt skal veita aðgang að gagnreyndum heilsufarsrannsóknum og mati sem ákveðið er á grundvelli einstaklingsbundinna þarfa.

Skólaheilsugæsla grunnskólabarna skal að lágmarki fela í sér heilsufarsskoðanir í 1., 4., 7. og 9. bekk.

Heilbrigðisstarfsmenn í heilsugæslu skulu fylgja eftir málum barna sem ekki mæta í reglulegar heilsufarsskoðanir og meta þörf þeirra fyrir stuðning og þjónustu eftir því sem við á.

Heilsufarsskoðanir geta verið framkvæmdar af hjúkrunarfræðingi, lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni sem hefur til þess viðeigandi menntun og hæfni.

8. gr. Inntak heilsufarsskoðana.

Í heilsufarsskoðunum skal, með viðtölum, skimunum og öðrum viðeigandi faglega viðurkenndum aðferðum eftir því sem við á, meta heilsu, vöxt, þroska, geðheilbrigði og vellíðan barna með hliðsjón af aldri þeirra og einstaklingsbundnum þörfum sem og aðstæður og áhættuþætti sem geta haft áhrif á heilsu þeirra og velferð.

Við framkvæmd heilsufarsskoðana skal tekið tillit til sjónarmiða og óska barna í samræmi við aldur þeirra og þroska.

III. KAFLISérfræðiþjónusta.

9. gr. Greining þarfa og veiting sértæks stuðnings.

Komi fram frávik við heilsufarsskoðun skal barni vísað án ástæðulaus dráttar til viðeigandi fagaðila eða sérfræðings til nánari mats á þörf þess fyrir sértæk úrræði, stuðning eða þjónustu.

Tryggja skal samstarf við viðeigandi fagaðila, svo sem skólaþjónustu, félagsþjónustu, barnavernd eða aðra sérfræðiþjónustu, eftir því sem við á, vegna mats á þörfum barns, stuðnings við það og eftirfylgdar.

10. gr. Tannheilsa barna.

Skólaheilsugæsla skal tryggja vöktun með skráningu barna hjá heimilistannlæknum auk eftirfylgni með þeim börnum sem ekki hafa skráðan heimilistannlækni eða hafa ekki mætt í tanneftirlit hjá skráðum heimilistannlækni í 24 mánuði. Skoða skal munnhol þeirra barna sem ekki hafa skráðan heimilistannlækni í reglubundnum heilsufarsskoðunum í 1., 4., 7. og 9. bekk.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 7. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, öðlast gildi 1. janúar 2027.

Heilbrigðisráðuneytinu, 23. júní 2026.

Alma D. Möller.

Guðlaug Einarsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2026

Tengd mál