Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Reykjavík, Umferðarmál

Undirritunardagur

15. október 2025

Útgáfudagur

24. nóvember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1200/2025

15. október 2025

REGLUR

um bílastæðakort fyrir deilibíla.

1. gr.

Reglur þessar gilda fyrir deilibílaleigur sem starfrækja einnar ferðar deilibíla, það er skammtímaútleigu ökutækja þar sem upphaf ferðar er ekki nauðsynlega á sama stað og lok ferðar og ökutæki er bókanlegt í innan við klukkustund í gegnum snjallforrit aðgengilegu almenningi.

2. gr.

Reykjavíkurborg gefur út bílastæðakort fyrir deilibíla, deilibílakort, sem veita heimild til að leggja deilibíl án endurgjalds í gjaldskylda stöðureiti og bílahús borgarinnar. Fyrir hvert deilibílakort skal greiða gjald í samræmi við gjaldskrá hverju sinni. Reglur um hámarkstíma gjaldsvæða eiga ekki við um deilibíla með deilibílakort. Deilibílakortið gildir ekki á lóðum eða í bílahúsum einkaaðila og þar með ekki á gjaldsvæði P4.

3. gr.

Eitt deilibílakort er gefið út fyrir hvern deilibíl. Deilibílakort er eingöngu gefið út fyrir deilibíla sem ganga fyrir rafmagni eða vetni og sem eru ekki lengri en 5,3 m eða breiðari en 2 m.

4. gr.

Sækja skal um deilibílakort með rafrænum hætti á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Umsókn um deilibílakort skal fylgja staðfesting á gildu starfsleyfi bílaleigu frá Samgöngustofu.

Ef eigandi ökutækis er annar en fyrirtæki sem sækir um deilibílakort skal fylgja staðfesting á afnotum af bifreiðinni, t.a.m. samningur um leigu á bifreiðinni.

Reykjavíkurborg aflar annarra nauðsynlegra upplýsinga frá umsækjanda og úr opinberum skrám, svo sem þjóðskrá og ökutækjaskrá, eftir því sem við á og í samræmi við gildandi lög.

5. gr.

Deilibílakort skulu gefin út með rafrænum hætti til eins árs í senn, en þó aldrei til lengri tíma en samningur um umráð ökutækis ber með sér.

Deilibílakort verður óvirkt þegar skilyrði fyrir útgáfu þess eru ekki lengur uppfyllt, t.a.m. ef rekstri er hætt eða vegna sölu ökutækis. Handhafa deilibílakorts ber að upplýsa um breytingar á bílaflota eða rekstri bílaleigunnar sem hafa áhrif á heimild hans til að nýta deilibílakort. Deilibílakorthafi verður að sækja um nýtt deilibílakort/endurnýja deilibílakort með nýrri umsókn.

6. gr.

Deilibílaleiga skal sjá til þess að deilibíll með deilibílakort sé:

  1. Vel sýnilega merktur deilibílaleigu.
  2. Ekki á negldum hjólbörðum.
  3. Ekki óhreyfður í bílastæði á gjaldskyldu svæði lengur en 12 klst. Ökutæki sem staðið hefur óhreyft í þann tíma skal færa á svæði þar sem ekki er gjaldskylda.

7. gr.

Til að Reykjavíkurborg geti metið árangur af stuðningi við deilibílaleigur með deilibílakortum skal deilibílaleiga veita Reykjavíkurborg a.m.k. eftirfarandi upplýsingar um hvern deilibíl:

  1. Fjölda ferða/bókana á mánuði.
  2. Fjölda bókaðra klukkustunda á mánuði.
  3. Fjölda ekinna kílómetra á mánuði.
  4. Meðallengd ferða á mánuði.
  5. Hlutfall ferða undir 5 km.
  6. Hlutfall ferða yfir 20 km.

8. gr.

Reykjavíkurborg getur ógilt deilibílakort ef handhafi verður uppvís að misnotkun, svo sem ef skilyrði kortsins, sbr. 1. gr., 4. gr., 5. gr. og/eða 6. gr., eru ekki lengur uppfyllt. Reykjavíkurborg getur að sama skapi ógilt öll deilibílakort sem úthlutað hefur verið til deilibílaleigu ef hún gerist uppvís að misnotkun á einu korti. Reykjavíkurborg skal tilkynna rekstaraðila deilibílaleigu um ógildingu korts samkvæmt ofangreindu.

9. gr.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, voru samþykktar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 25. júní 2025 og á fundi borgarráðs 24. júlí 2025, og hafa fengið samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, taka gildi við birtingu. Reglur þessar eru tímabundnar og gilda til 31. desember 2027.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 15. október 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 24. nóvember 2025

Tengd mál