Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

29. desember 2025

Útgáfudagur

30. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1556/2025

29. desember 2025

REGLUR

um gagnaskil fjármálafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að veita fjármálaeftirlitinu upplýsingar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Tíðni og form gagnaskila fjármálafyrirtækja.

Fjármálafyrirtæki skal veita fjármálaeftirlitinu upplýsingar samkvæmt sjöunda hluta A reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. lög um fjármálafyrirtæki, með þeim hætti og þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2024/3117, sbr. 3. gr.

Sértækum gögnum um markaðsáhættu skal skila í samræmi við reglugerð (ESB) 2021/453, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/453 frá 15. mars 2021 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar sérstakar skýrslugjafarkröfur fyrir markaðsáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2021 frá 29. október 2021 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 29. febrúar, bls. 36.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/3117 frá 29. nóvember 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar skýrslugjöf stofnana til eftirlitsyfirvalda samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/451, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2025 frá 13. júní 2025.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/453 og 2024/3117 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R0453, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 89, þann 16. mars 2021, bls. 3-14;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R3117, birt í OJ deild, undirdeild R, 2024/3117, þann 27. desember 2024.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1345/2024, um gagnaskil fjármálafyrirtækja.

Seðlabanka Íslands, 29. desember 2025.

Ásgeir Jónsson

seðlabankastjóri.

Gísli Óttarsson

framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025

Tengd mál