Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómstólasýsla
Málaflokkur
Dómsmál
Undirritunardagur
31. október 2023
Útgáfudagur
27. desember 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1499/2023
31. október 2023
REGLUR
um breyting á reglum nr. 1165/2017 um aukastörf héraðsdómara, landsréttardómara og hæstaréttardómara og eignarhlut þeirra í félögum og atvinnufyrirtækjum og skráning þeirra.
1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 6. gr. reglnanna:
3. mgr. orðast svo:
Dómara er óheimilt að gegna stöðu framkvæmdastjóra eða sambærilegu stjórnunarhlutverki í félagi sem rekið er í hagnaðarskyni. Dómara er óheimilt að sitja í stjórn eða varastjórn félags sem rekið er í hagnaðarskyni.
2. gr.
7. gr. reglnanna breytist og orðast svo:
Dómara er óheimilt að eiga hlut í félagi eða atvinnufyrirtæki. Frá því getur nefnd um dómarastörf veitt undanþágu, ef ljóst er að slíkt er ekki ósamrýmanlegt stöðu dómara eða leiðir ekki af sér hættu á að hann geti sinnt embættisstarfi sínu sem skyldi.
Dómari skal leita heimildar nefndar um dómarastörf til að eiga áfram eða eignast hlut í félagi eða atvinnufyrirtæki sem rekið er í hagnaðarskyni sé eignarhluturinn að verðmæti 7.000.000 krónur eða meira þegar heimildar er leitað, eða ef hann nemur 5% eða meira.
Skylt er að tilkynna nefnd um dómarastörf óski dómari eftir að eiga áfram eða eignast hlut í félagi eða atvinnufyrirtæki nemi eignarhlutur lægra verðmæti eða hlutfalli en tilgreint er í 2. mgr.
Hvort sem tilkynnt er um eignarhlut eða leitað heimildar til að eiga hlut skal tilgreina fjölda hluta, nafnverð og markaðsverð. Liggi ekki fyrir upplýsingar um nafn- og/eða markaðsverð skal tilgreina eignir félags og skuldir.
Leggi dómari fé í fjárfestingarsjóð, verðbréfasjóð eða sambærilegan sjóð sem veitir dómara hlutdeild í sjóði um sameiginlega fjárfestingu, sbr. lög nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og lög nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, er honum ekki skylt að tilkynna nefnd um dómarastörf þá ráðstöfun fjár.
3. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla, sbr. 45. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 31. október 2023.
Nefnd um dómarastörf,
Ragnheiður Thorlacius.
| Helgi I. Jónsson. | Sindri M. Stephensen. |
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023