Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
29. maí 2026
Útgáfudagur
29. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 601/2026
29. maí 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 854/2016 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra.
1. gr.
Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi málsgrein:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2143 frá 23. október 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/340 að því er varðar innleiðingu á hæfnimiðaðri þjálfun og mati sem og sýndarþjálfun fyrir flugumferðarstjóra. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, 28. maí 2026, bls. 26, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100 frá 20. mars 2026.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 73. og 83. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 29. maí 2026.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026