Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Norðurþing

Málaflokkur

Skipulagsmál, Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Byggingarmál, Mannvirki, Gatnagerðargjöld, Norðurþing

Undirritunardagur

22. júní 2026

Útgáfudagur

6. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 763/2026

22. júní 2026

SAMÞYKKT

um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu, byggingarleyfisgjald, byggingarheimildargjald, gjöld vegna skipulagsvinnu og afgreiðslu- og þjónustugjöld í Norðurþingi.

I. KAFLIAlmennt.

1. gr. Almenn heimild.

Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í sveitarfélaginu Norðurþingi skal greiða byggingarleyfisgjald eða byggingarheimildargjald og afgreiðslu- og þjónustugjöld samkvæmt samþykkt þessari í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í sveitarfélaginu Norðurþingi skal greiða gatnagerðargjald samkvæmt samþykkt þessari, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Gjöld vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsvinnu eru lögð á samkvæmt heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fjárhæðir í samþykkt þessari taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingarvísitölu eins og hún er birt af Hagstofu Íslands (grunnvísitala samþykktarinnar er 126,8 stig fyrir janúar 2026).

II. KAFLIGatnagerðargjald.

2. gr. Ráðstöfun gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja.

Tengi- og heimæðargjöld aðveitna og fráveitu eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi.

3. gr. Gjaldstofn gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.

Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:

  1. Þegar sveitarfélagið úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Sama á við um aukinn byggingarrétt vegna stækkunar lóða.
  2. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu byggingarleyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.

Við álagningu skv. b-lið 2. mgr. skal miða við stærð húss samkvæmt samþykktum uppdráttum og ÍST 50.

4. gr. Útreikningur gatnagerðargjalds.

Greiða skal gatnagerðargjald af hverjum fermetra mismunandi húsgerða eins og fram kemur í eftirfarandi töflu.

Allar fjárhæðir í þessari samþykkt taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingarvísitölu sem reiknast af Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 163/2007.

Samþykktin gildir jafnt fyrir leigulóðir og eignarlóðir þar sem sveitarfélagið stendur að gatnagerð. Gjöld talin upp í þessari grein gilda á Húsavík. Gatnagerðargjald vegna íbúðarlóða og íbúðarbygginga á Raufarhöfn, Kópaskeri og í Hrísateigi nema 60% af gatnagerðargjaldi á Húsavík.

Grunnur gatnagerðargjalds á hvern fermetra nýbygginga fyrir mismunandi húsgerðir er sem hér segir:

  Einbýlishús með eða án bílgeymslu 28.484 kr./m²
  Parhús með eða án bílgeymslu 25.318 kr./m²
  Raðhús með eða án bílgeymslu 25.318 kr./m²
  Fjölbýlishús með eða án bílgeymslu 14.242 kr./m²
  Verslunar-, þjónustu-, iðnaðar- og annað húsnæði 17.407 kr./m²
  Hesthús og önnur gripahús í þéttbýli 12.659 kr./m²
  Gatnagerðargjald á skilgreindu iðnaðarsvæði á Bakka 12.659 kr./m²

Þegar veitt er byggingarleyfi eða byggingarheimild fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun húsnæðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk, sbr. 1. mgr., skal greiða gatnagerðargjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

5. gr. Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.

Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:

  1. Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan frá.
  2. Óeinangruð smáhýsi, minni en 15 m.
  3. Viðbyggingar innan íbúðarhúsalóða (einbýli, raðhús, parhús og fjölbýli) sem úthlutað var fyrir febrúar 2006.

6. gr. Heimild til lækkunar eða niðurfellingar gatnagerðargjalds.

Sveitarstjórn getur lækkað eða fellt niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, sbr. ákvæði 6. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

7. gr. Byggingarréttargjald/gatnagerðargjald.

Heimilt er að selja eða leita eftir tilboðum í byggingarrétt lóða í landi Norðurþings.

Tilgreina skal upphæð byggingarréttargjalds eða lágmarksgjald lóða í útboðsskilmálum.

Á þróunar- og þéttingarreitum skal semja um byggingarréttargjald sérstaklega áður en framkvæmdir hefjast eða áður en deiliskipulag hefur tekið gildi.

Jafnframt skal semja um byggingarréttargjald áður en framkvæmdir hefjast í tilvikum þar sem aukning á byggingarmagni leiðir af sér aukna innviðauppbyggingu á svæðum sem eru ekki skilgreind sem þróunarreitir.

8. gr. Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.

Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við sveitarfélagið Norðurþing fyrir gildistöku samþykktar þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjald, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hafa undirgengist, fer samkvæmt eftirfarandi ákvæðum:

  1. Gatnagerðargjald vegna lóða sem úthlutað var fyrir 1. febrúar 2006: Ákvæði samþykktar um gatnagerðargjald í Húsavíkurkaupstað frá 21. maí 1997 gildir í öllu sveitarfélaginu um lóðir sem úthlutað var fyrir 1. febrúar 2006. Þó skal ekki greiða gatnagerðargjald af viðbyggingum við íbúðarhúsnæði, sbr. 5. gr.
  2. Gatnagerðargjald vegna lóða sem úthlutað var eftir 1. febrúar 2006 en fyrir 1. mars 2007: Ákvæði samþykktar um gatnagerðargjald í Húsavíkurkaupstað frá 21. febrúar 2006 gildir í öllu sveitarfélaginu um lóðir sem úthlutað var milli 1. febrúar 2006 og 1. mars 2007.

9. gr. Áfangaskipti framkvæmda.

Í þeim tilvikum þegar lóðarhafi hyggst byggja hús, annað en íbúðarhús, í áföngum, getur sveitarstjórn heimilað slíka áfangaskiptingu og þá skal gatnagerðargjald hverju sinni greiðast samkvæmt þeirri samþykkt sem í gildi er þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið.

Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram í lóðarumsókn að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í áföngum og hvenær hann hyggst hefja framkvæmdir við sérhvern byggingaráfanga.

Verði heimiluð áfangaskipti falla áætluð gjöld í gjalddaga við upphaf hvers byggingaráfanga í samræmi við áform lóðarhafa við úthlutun lóðarinnar.

III. KAFLI Tengigjald fráveitu.

10. gr. Stofngjald.

Tengigjald fráveitu skal innheimt af og greitt til Orkuveitu Húsavíkur ohf. en sveitarstjórn Norðurþings hefur falið Orkuveitu Húsavíkur ohf. rekstur fráveitumála og framkvæmd samþykktar um fráveitur í sveitarfélaginu Norðurþingi, sbr. 2. mgr. 1. gr. samþykktar um fráveitur í sveitarfélaginu Norðurþingi. Gildir VII. kafli þessarar samþykktar um greiðsluskilmála, lögveðsrétt og endurgreiðslur um tengigjald fráveitu eftir því sem við á.

Tengigjald fráveitu skal ákveðið í verðskrá Orkuveitu Húsavíkur ohf.

IV. KAFLIByggingarleyfis- og byggingarheimildargjöld.

11. gr. Flokkun bygginga og gjaldskrá.

Samkvæmt samþykkt þessari skal greiða byggingarleyfis- eða byggingarheimildargjald fyrir útgáfu á byggingarleyfi eða byggingarheimild sem byggingarfulltrúi veitir.

Innifalið í byggingarleyfis- eða byggingarheimildargjaldi er ein yfirferð aðaluppdrátta, byggingarleyfi/byggingarheimild, útmæling fyrir greftri, útmæling og hæðarsetning fyrir uppslætti og útsetning lóðar, byggingareftirlit byggingarfulltrúa, lögbundnar úttektir byggingarfulltrúa, fokheldisvottorð og vottorð um öryggis- og lokaúttektir.

Fyrir byggingarleyfi nýrra húsa, viðbygginga, breytinga húsa, verulegra breytinga innan lóða og samþykki fyrir breyttri notkun greiðist fast gjald 75.319 kr. Samsvarandi er fast gjald vegna byggingarheimildar 60.328 kr.

Að auki greiðist fyrir hvern fermetra nýbygginga og viðbygginga skv. eftirfarandi:

  Íbúðarhúsnæði, bílskúrar, hótel, verslanir, skrifstofur    705 kr./m² byggingar
  Iðnaðarhús, verkstæði, virkjanir    576 kr./m² byggingar
  Gripahús, hlöður, vélageymslur, tankar, ker, þrær o.s.frv.    448 kr./m² byggingar
  Frístundahús, veiðihús, fjallaskálar o.s.frv. 1.280 kr./m² byggingar

V. KAFLIGjöld vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsvinnu.

12. gr. Gjöld vegna framkvæmdaleyfa.

Samkvæmt samþykkt þessari skal greiða gjald fyrir veitingu framkvæmdaleyfa vegna þeirra framkvæmda sem afla þarf framkvæmdaleyfis fyrir. Gjaldið má ekki vera hærri upphæð en nemur kostnaði við undirbúning og útgáfu leyfisins auk kostnaðar við tilheyrandi eftirlit með framkvæmdum.

Lágmarksgjald vegna veitingar framkvæmdaleyfis er 179.734 kr.

Innifalinn í framkvæmdaleyfisgjaldi er kostnaður sveitarfélagsins vegna útgáfu og undirbúnings leyfisveitingar auk kostnaðar við eftirlit.

13. gr. Gjöld vegna skipulagsvinnu.

Samkvæmt samþykkt þessari skal greiða gjald fyrir grenndarkynningar og deiliskipulagsbreytingar eins og hér greinir:

  Umfangslítil grenndarkynning vegna byggingarleyfis    38.542 kr.
  Almenn grenndarkynning vegna byggingarleyfis    59.911 kr.
  Lítil breyting á deiliskipulagsuppdrætti eða lóðarblaði 129.808 kr.
  Grenndarkynning vegna breytingar á deiliskipulagi    59.911 kr.
  Afgreiðsla deiliskipulagsbreytingar skv. 2. mgr. 43. gr. 179.734 kr.
  Afgreiðsla deiliskipulagsbreytingar skv. 1. mgr. 43. gr. 239.645 kr.
  Afgreiðsla nýs deiliskipulags skv. 40. og 41. gr. 239.645 kr.

Greitt er fyrir hvern þann lið hér að ofan sem sveitarfélagið þarf að vinna við fullnaðarafgreiðslu deiliskipulags eða deiliskipulagsbreytingar. Afgreiðslur hér að ofan fela í sér kostnað við umfjöllun sveitarfélagsins auk auglýsinga um kynningu skipulagsins og gildistöku.

Landeigandi eða framkvæmdaaðili getur óskað eftir því við sveitarstjórn að gerð sé tillaga að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað. Um ferli slíks deiliskipulags fer skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.

VI. KAFLIAfgreiðslu- og þjónustugjöld.

14. gr.Gjaldskrá.

Greiða skal fyrir þjónustu og leyfisveitingu sem byggingarfulltrúi veitir umfram þá sem innifalin er í byggingarleyfisgjaldi:

  Hver endurskoðun aðaluppdrátta 38.542 kr.
  Afgreiðslugjald og endurnýjun leyfis án breytinga 38.542 kr.
  Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt 38.542 kr.
  Eignaskiptayfirlýsingar, hver umfjöllun 76.886 kr.
  Gjald fyrir lóðarúthlutun 192.115 kr.  
  Gjald fyrir framlengingu lóðarúthlutunar 76.886 kr.
  Fyrir breytingu á lóðarsamningi 38.542 kr.
  Fyrir breytingu á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs 38.542 kr.
  Húsaleiguúttektir 76.886 kr.
  Útkall byggingarfulltrúa að óþörfu 38.542 kr.
  Afgreiðsla stöðuleyfis 38.542 kr.
  Fyrir hverja auka útsetningu lóðar/húss; pr. mælingu 38.542 kr.
  Ljósritun: A4: 256 kr./blað, A3: 510 kr./blað  

VII. KAFLIGreiðsluskilmálar, lögveðsréttur og endurgreiðslur.

15. gr. Greiðsluskilmálar.

Gatnagerðargjald skv. 4. gr. og byggingarleyfis- eða byggingarheimildargjöld skv. 10. gr. skal greiða innan mánaðar frá samþykki byggingaráforma, ella öðlast leyfi ekki gildi.

Heimilt er að semja um greiðslufrest og skal það gert samkvæmt sérstökum greiðslusamningi. Gjöld vegna skipulagsvinnu skv. 12. gr. skal greiða áður en gildistaka skipulags er auglýst. Þjónustugjöld skv. 13. gr. skal greiða innan mánaðar frá því að þjónustan var veitt.

16. gr. Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Lögveðsréttur.

Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Gatnagerðargjald er ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

17. gr. Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Gjöld samkvæmt 4. og 9. gr. samþykktar þessarar skulu endurgreidd ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð. Hafi útsetning samkvæmt byggingarleyfi ekki farið fram og framkvæmdir ekki hafist getur umsækjandi fengið helming byggingarleyfisgjalda skv. 10. gr. endurgreiddan. Þar með fellur byggingarleyfi niður. Endurgreiðslu vegna 4. gr. er heimilt að fresta þar til lóð hefur verið úthlutað að nýju en þó ekki lengur en í sex mánuði. Gjöld þessi skulu endurgreidd á nafnverði án verðbóta og vaxta og skuldaviðurkenningar skulu ógiltar á sannanlegan hátt. Ekki koma til bætur vegna hugsanlegra framkvæmda á lóðinni.

Gjöld vegna skipulagsvinnu skv. 12. gr. og þjónustugjöld samkvæmt 13. gr. eru óendurkræf. Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

VIII. KAFLIGildistaka.

18. gr.

Samþykktin er samþykkt af sveitarstjórn Norðurþings, 19. febrúar 2026 skv. heimild í lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006, skipulagslögum, nr. 123/2010, og lögum um mannvirki, nr. 160/2010.

Samþykktin öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt sama efnis nr. 1338/2023.

Húsavík, 22. júní 2026.

Bergþór Bjarnason sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 6. júlí 2026

Tengd mál