Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Upplýsingar
Undirritunardagur
17. mars 2026
Útgáfudagur
31. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 311/2026
17. mars 2026
AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.
1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna. Skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 17. mars 2029:
- Landsbankinn hf.
- Orkusalan ehf.
- Landsvirkjun sf.
2. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 17. mars 2026.
Kristrún Frostadóttir.
Benedikt Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 31. mars 2026