Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalabyggð
Málaflokkur
Sorphreinsun, Dalasýsla
Undirritunardagur
20. maí 2026
Útgáfudagur
29. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 572/2026
20. maí 2026
GJALDSKRÁ
fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð.
1. gr.
Sveitarstjórn Dalabyggðar er heimilt, í samræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Dalabyggð, nr. 845/2021, að innheimta gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs í Dalabyggð.
2. gr.
Úrgangur frá heimilum í sveitarfélaginu og einbýlishúsum í þéttbýli skal flokkaður í 7 flokka og er að lágmarki greitt gjald fyrir grunneiningu fjögurra íláta við húsvegg. Grunneiningin samanstendur af ílátum fyrir plastefni, pappír og pappa, lífúrgang og blandaðan heimilisúrgang. Til viðbótar skal safna gleri, málmum og textíl sem skila skal í lúgur við söfnunarstöð.
Gjöldin greiðast árlega sem hér greinir:
| Gjaldflokkur | Tegund og stærð íláts | Gjald, kr./ílát á ári | |
| Breytilegt gjald fyrir blandaðan úrgang | 4 vikur | ||
| A.1 | Blandað, 120/140 l spartunna | 26.988 | |
| A.2 | Blandað, 240 l tunna | 43.596 | |
| A.3 | Blandað, 660 l kar | 119.370 | |
| A.4 | Blandað, 1.100 l kar | 197.220 | |
| Breytilegt gjald fyrir flokkað pappírsefni | Búðardal 4 vikur |
Dreifbýli 8 vikur |
|
| B.1 | Pappi/pappír, 240 l tunna | 8.304 | 8.304 |
| B.2 | Pappi/pappír, 360 l tunna | 13.494 | 8.304 |
| B.3 | Pappi/pappír, 660 l kar | 26.988 | 8.304 |
| B.4 | Pappi/pappír, 1.100 l kar | 45.672 | 18.684 |
| Breytilegt gjald fyrir flokkað plastefni | Búðardal 4 vikur |
Dreifbýli 8 vikur |
|
| C.1 | Plast, 240 l tunna | 8.304 | 8.304 |
| C.2 | Plast, 360 l tunna | 13.494 | 8.304 |
| C.3 | Plast, 660 l kar | 26.988 | 16.608 |
| C.4 | Plast, 1.100 l kar | 45.672 | 26.988 |
| Breytilegt gjald fyrir flokkað, lífúrgangur | 4 vikur* | ||
| D.1 | Plast, 240 l tunna | 10.380 | |
* 2 vikna hirðutíðni á sumrin.
Almenn/ráðlögð ílátastærð meðalheimilis feitletruð.
Frístundahús og einbýlishús í dreifbýli hafa aðgang að grenndarstöðvum á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu. Gjald fyrir þá þjónustu er 16.608 kr. fyrir árið.
Fast gjald, 29.064 kr., er lagt á allar fasteignir sveitarfélagsins til að standa straum af veittri þjónustu tengdri málaflokknum og er ekki beintengt úrgangsmagni s.s. umsýsla, fræðsla, hreinsun rusls á víðavangi, rekstur grenndarstöðvar fyrir gler, málm og textíl og aðgengi að gámasvæði með gjaldfrjálsan úrgang.
Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignagjöldum.
3. gr.
Ef sorptunna/ílát skemmist eða hverfur vegna þess að það hefur ekki verið gengið nægilega vel frá þeim, t.d. undir skýli eða að festingar vantar verður innheimtur raunkostnaður á hverja tunnu/ílát samkvæmt reikningi frá verktaka.
Sorptunnur/ílát sem geymd eru utanhúss skulu standa á fastri undirstöðu og vera þannig staðsettar að aðgangur að þeim sé greiður og af þeim geti ekki stafað óþægindi eða óþrifnaður fyrir umhverfið, sbr. 15. gr. reglugerðar um meðhöndlun úrgangs nr. 803/2023.
Umsýslugjald greiðist við afhendingu nýrra tunna/íláta og ef skipt er milli stærða. Sé tunnu/íláti skipt út fyrir aðra stærð er eldri tunna/ílát tekið upp í nýja, enda sé hún óskemmd. Verð eldri tunnu/íláts miðast við verð á nýju, að frádreginni afskriftarupphæð sem nemur 1/10 fyrir hvert ár sem liðið er frá því notkun hófst.
Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu er 5.190 kr. í hvert sinn sem óskað er breytinga. Á þetta við um breytingu á ílátum/tunnum, viðbótarílát eða breytta skráningu, svo sem samnýtingu á tunnum/ílátum.
4. gr.
Gjaldtaka á söfnunarstöð í Búðardal miðast við rúmmál (m³) þess úrgangsmagns sem afsett er. Allur úrgangur er gjaldskyldur við afsetningu nema brotamálmar, spilliefni og úrgangur sem ber úrvinnslugjald til Úrvinnslusjóðs. Starfsmaður stöðvar magntekur úrgang sem hleypur á 0,25 m³, greitt er fyrir þann úrgang á staðnum.
| Blandaður úrgangur | 10.800 kr./m³ |
| Óflokkaður grófur úrgangur | 11.600 kr./ m³ |
| Timbur, litað og hreint | 9.200 kr./m³ |
| Gormadýnur | 12.000 kr. /m³ |
|
Óvirkur úrgangur |
6.000 kr. /m³ |
|
Eðlisléttur úrgangur til urðunar |
1.500 kr. /m³ |
| Lágmarkskomugjald á stöð með gjaldskyldan úrgang (minna en 0,25 m³) |
800 kr./skipti |
Eftirfarandi flokkar eru gjaldfrjálsir:
- Spilliefni, rafeindabúnaður, raftæki, rafgeymar, rafhlöður og ljósaperur.
- Bylgjupappi, pappír, umbúðaplast – móttaka í lúgu allan sólarhringinn.
- Glerkrukkur og málmumbúðir (niðursuðudósir o.s.frv.) – móttaka í lúgu allan sólarhringinn.
- Rúlluplast, hjólbarðar, kertaafgangar og fatnaður (textíll).
- Brotajárn og málmar.
Úrgangur skal vera flokkaður við komu á söfnunarstöð svo hægt sé að aðgreina flokka úrgangs.
5. gr.
Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 13. maí 2026 staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og öðlast gildi 1. júní 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 15/2025.
Búðardal, 20. maí 2026.
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026