Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Fóður

Undirritunardagur

23. mars 2026

Útgáfudagur

10. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 347/2026

23. mars 2026

REGLUGERÐ

um (21.) breytingu á reglugerð nr. 1205/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um aukefni í fóðri.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist tuttugu og einn nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1386 frá 15. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Trichoderma reesei CBS 114044, sem fóðuraukefni fyrir eldissvín, varphænur og aukategundir alifugla (leyfishafi er AB Enzymes Finland Oy). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 78.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1390 frá 15. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu af bakteríufögunum PCM F/00069, PCM F/00070, PCM F/00071 og PCM F/00097 sem fóðuraukefni fyrir alifugla (leyfishafi er Proteon Pharmaceuticals S.A.) Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 81.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1391 frá 15. júlí 2025 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/1186 að því er varðar styrk metýlevgenóls í ilmkjarnaolíu úr kanilberki. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 85.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1392 frá 15. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu með 3-fýtasa, sem er framleiddur með Komagataella phaffii CECT 13171, sem fóðuraukefni fyrir alifuglategundir til eldis eða sem eru aldar til varps eða til undaneldis, aukategundir alifugla til undaneldis, varphænur og eldissvín af öllum svínategundum (leyfishafi er Fertinagro Biotech S.L.) Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 87.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1395 frá 15. júlí 2025 um leiðréttingu og breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/997 að því er varðar skilmála leyfisins fyrir fljótandi L-lýsínbasa sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 91.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1400 frá 16. júlí 2025 um leyfi fyrir piparmintuilmkjarnaolíu úr Mentha × piperita L., ljómasalvíuilmkjarnaolíu úr Salvia sclarea L. og salvíuilmkjarnaolíu úr Salvia officinalis L. sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 100.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1402 frá 16. júlí 2025 um leyfi fyrir teviðarilmkjarnaolíu úr Melaleuca alternifolia (Maiden & Betche) Cheel sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 111.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1403 frá 16. júlí 2025 um leyfi fyrir spánarsalvíuilmkjarnaolíu úr Salvia officinalis ssp. lavandulifolia (Vahl) Gams og lofnarblómailmkjarnaolíu úr Lavandula angustifolia Mill. sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 117.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1417 frá 17. júlí 2025 um leyfi fyrir spænskri kjarrmintuilmkjarnaolíu úr Thymbra capitata (L.) Cav. sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 125.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1418 frá 17. júlí 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með endó-1,3(4)-betaglúkanasa og endó-1,4-betaxýlanasa, sem eru framleiddir með Talaromyces versatilis IMI CC 378536, sem fóðuraukefni fyrir allar tegundir alifugla, fráfærugrísi, eldissvín og gyltur (leyfishafi er Adisseo France S.A.S.) og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 290/2014 and (ESB) nr. 1138/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 131.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1419 frá 17. júlí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/148, (ESB) 2021/2094 og (ESB) 2023/1172 að því er varðar heiti leyfishafa fyrir fóðuraukefnum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 136.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1423 frá 17. júlí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 684/2014 að því er varðar skilmála leyfisins fyrir blöndu með kantaxantíni sem fóðuraukefni fyrir undaneldishænur (leyfishafi er DSM Nutritional Products Ltd.) Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 139.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1424 frá 17. júlí 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir bíótíni og tveimur blöndum með bíótíni sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/723. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 144.
  14. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1426 frá 17. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu með Saccharomyces cerevisiae CNCM I-1077 sem fóðuraukefni fyrir jórturdýr (önnur en lömb) og dýr af úlfaldaætt sem eru alin til mjólkurframleiðslu eða alin til undaneldis, ung jórturdýr til eldis önnur en kálfa og lömb, folöld dýra af úlfaldaætt til eldis og dýr af hestaætt önnur en hesta (leyfishafi er Lallemand SAS) og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/149 að því er varðar skilmála leyfisins fyrir blöndu með Saccharomyces cerevisiae CNCM I-1077 sem fóðuraukefni fyrir lömb. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 255/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 150.
  15. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1465 frá 22. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu með Enterococcus faecium ATCC 53519 og blöndu með Enterococcus faecium ATCC 55593 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 256/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 156.
  16. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1468 frá 22. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu með Bacillus subtilis DSM 33862 og Lentilactobacillus buchneri DSM 12856 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 256/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 160.
  17. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1504 frá 25. júlí 2025 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með Lactiplantibacillus plantarum NCIMB 40027 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1113/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 164.
  18. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1523 frá 28. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu með Lactiplantibacillus plantarum NCIMB 30094 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 169.
  19. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1527 frá 29. júlí 2025 um leyfi fyrir blöndu með Lactiplantibacillus plantarum NCIMB 41028 og blöndu með Lactiplantibacillus plantarum NCIMB 30148 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 172.
  20. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1915 frá 25. september 2025 um leyfi fyrir L-trýptófani, sem er framleitt með Corynebacterium glutamicum KCCM 80346, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 176.
  21. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1928 frá 25. september 2025 um leyfi fyrir blöndu með lútínauðugum útdrætti úr Tagetes erecta L. sem fóðuraukefni fyrir eldiskalkúna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 180.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. mars 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

B deild — Útgáfudagur: 10. apríl 2026

Tengd mál