Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skagafjörður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Skagafjörður
Undirritunardagur
9. desember 2025
Útgáfudagur
23. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1442/2025
9. desember 2025
GJALDSKRÁ
vegna kostnaðar við skipulagsvinnu, stofnun lóða, byggingarreita og útgáfu framkvæmdaleyfa í Skagafirði.
1. gr. Almenn heimild.
Gjaldtaka vegna framkvæmdaleyfa og vinnu við skipulagsáætlanir byggir á skipulagslögum nr. 123/2010.
Gjaldi vegna framkvæmdaleyfa og vinnu við skipulagsáætlanir skal varið til að standa straum af kostnaði sveitarfélagsins við útgáfu framkvæmdaleyfa, gerð skipulagsáætlana, breytingu á þeim, kynningu og auglýsingu.
Gjaldskráin byggir á þeirri grunnreglu að aðili sem óskar eftir vinnu við gerð skipulagsáætlana, þ.m.t. breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi, og eftir atvikum vinnu við svæðisskipulag og/eða framkvæmdaleyfi, skuli greiða þann kostnað sem breytingin eða önnur vinna hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, ritun nýrra greinargerða og breytingu á þeim, auglýsinga og kynninga vegna málsins og alls undirbúnings slíkra skjala, þ.m.t. vegna nauðsynlegs umhverfismats áætlana og vegna samskipta við skipulagsyfirvöld, úrskurðaraðila og dómstóla. Til slíks kostnaðar telst kostnaður vegna vinnu starfsmanna sveitarfélagsins og hvers konar útlagður kostnaður, þ.m.t. vegna aðkeyptrar þjónustu. Sveitarstjórn getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.
Fjárhæðir í gjaldskrá þessari taka breytingum 1. dag janúarmánaðar hvers árs í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu (grunnur 2010). Grunnvísitalan í september 2025 er 125,8 stig.
2. gr. Skipulags-, leyfis- og þjónustugjöld.
Vegna vinnu eða aðkeyptrar þjónustu við skipulagsáætlun eða breytingar á henni, eða vegna framkvæmdaleyfa og/eða vegna annarrar þjónustu skipulagsfulltrúa, annarra starfsmanna sveitarfélagsins sem óskað er eftir, skal greiða gjöld, sem gjaldskrá þessi kveður á um.
Fyrir afgreiðslu umsóknar hjá embættinu, sbr. 3. og 4. mgr., skal umsækjandi greiða 31.800 kr.
Gjald fyrir skipulagsvinnu, umsýslu o.fl.:
Landeigandi eða framkvæmdaraðili getur óskað eftir því við sveitarstjórn að hún vinni að gerð skipulagsáætlunar, eða breytingu á henni á sinn kostnað. Fyrir slíka vinnu og afgreiðslu skal greiða eftirfarandi gjöld:
| Aðalskipulagsbreyting skv. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | |
| Vinnsla breytingartillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður | kr. 324.000 |
| Óveruleg breyting á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | |
| Vinnsla breytingartillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður | kr. 131.500 |
| Nýtt deiliskipulag skv. 37.–42. gr skipulagslaga nr. 123/2010 | |
| Vinnsla tillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður | kr. 196.500 |
| Nýtt deiliskipulag skv. 37.–42. gr. án lýsingar og kynningar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | |
| Vinnsla tillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður | kr. 164.500 |
| Breyting á deiliskipulagi skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | |
| Vinnsla breytingartillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður | kr. 131.500 |
| Óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. með grenndarkynningu | |
| Vinnsla breytingartillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður: | kr. 98.000 |
| Óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. án grenndarkynningar | |
| Vinnsla breytingartillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður | kr. 65.500 |
| Grenndarkynning byggingar- eða framkvæmdaleyfis skv. 44. gr. | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður | kr. 59.500 |
| Breyting á gildandi lóðarblaði/landsstærð | |
| Vinnsla tillögu | skv. reikningi |
| Umsýslukostnaður | kr. 38.000 |
| Málsmeðferð stakra framkvæmda skv. 1. tl. ákvæða til bráðabirgða | |
| Vinnsla tillögu | skv. reikningi |
| Umsýslukostnaður | kr. 38.000 |
| Gjöld vegna framkvæmdaleyfis, o.fl. | |
| Framkvæmdaleyfisgjald skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | kr. 130.500 |
| Framkvæmdaleyfisgjald skv. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | kr. 187.000 |
| Framkvæmdaleyfi, umfangsmiklar framkvæmdir | skv. reikningi |
| Framkvæmdaleyfi, aðrar framkvæmdir | kr. 38.000 |
| Umsókn um stofnun á byggingarreit | |
| Vinnsla tillögu | skv. reikningi |
| Afgreiðslugjald | kr. 31.800 |
| Umsóknir um stofnun lands og lóða | |
| Vinnsla tillögu | skv. reikningi |
| Þinglýsingargjald | skv. reikningi |
| Afgreiðslugjald | kr. 44.500 |
| Breyting á skráningu fasteigna/lóða/landeigna hjá Þjóðskrá Íslands | |
| Þinglýsingargjald | skv. reikningi |
| Afgreiðslugjald | kr. 31.800 |
| Lóðarúthlutunargjald | kr. 75.000 |
| Gjald fyrir úthlutun þróunarreita/þróunarsvæða, til þess að mæta kostnaði við samningsgerð, vinnu starfsmanna og ráðgjafa vegna skipulags og lóðaúthlutunar, viðkomandi reits/svæðis, sem og aðra nauðsynlega umsýslu | Ákveðið í úthlutunarskilmálum skv. ákvörðun byggðarráðs |
| Fyrir útgáfu/breytingu á lóðarleigusamningi | |
| Afgreiðslugjald | kr. 31.800 |
| Þinglýsingargjald | skv. reikningi |
| Fyrir breytingu á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs | |
| Vinnsla tillögu | skv. reikningi |
| Afgreiðslugjald | kr. 31.800 |
Gjald skv. framangreindu er viðmiðunargjald. Ef kostnaður sveitarfélagsins vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða annarra starfsmanna sveitarfélagsins eða annar áfallinn kostnaður, þ.m.t. vegna aðkeyptrar þjónustu, er umfram viðmiðunargjald skv. þessari gjaldskrá, vegna umfangs verksins, eða hversu það er flókið, s.s. við umfangsmeiri skipulagsvinnu og skipulagsvinnu vegna umhverfismatsskyldra framkvæmda eða umfangsmikilla samskipta við skipulagsyfirvöld, úrskurðaraðila og dómstóla, er heimilt að leggja á til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. þessarar greinar, tímagjald skipulagsfulltrúa sem er 25.000 kr./klst. Sé um að ræða kostnað vegna aðkeyptrar þjónustu sem nauðsynleg er vegna verksins skal greiða gjald skv. greiddum reikningi viðkomandi aðila.
3. gr.
Gjöld skv. þessari gjaldskrá falla í gjalddaga tveimur vikum eftir að sveitarstjórn hefur tilkynnt umsækjanda um að ákveðið hafi verið að hefja þá vinnu sem óskað er eftir að unnin verði. Gjald skv. 2. og 3. málsl. 5. mgr. 2. gr. falla þó í gjalddaga hálfum mánuði eftir að sveitarfélagið hefur krafið umsækjanda um endurgreiðslu á þeim kostnaði sem þar um ræðir.
Samþykki við því að hefja þá vinnu sem vísað er til í þessari gjaldskrá felur ekki í sér vilyrði fyrir eða samþykki við því að viðkomandi skipulagsáætlun taki gildi eða að viðkomandi leyfi verði veitt. Sveitarfélagið getur stöðvað umbeðna skipulagsvinnu sé gjald vegna hennar í vanskilum.
Almennt afgreiðslugjald og gjald fyrir lóðarúthlutun eru óafturkræf. Reynist endanlegur kostnaður, sem fellur á sveitarfélagið af skipulagsvinnu eða vegna framkvæmdaleyfis, minni en þau gjöld sem greidd hafa verið vegna viðkomandi vinnu í heildina, skal mismunur endurgreiddur umsækjanda.
4. gr.
Skipulagsfulltrúa er heimilt að gera samning við umsækjanda sem víkur frá ákvæðum þessarar gjaldskrár, enda miði samningurinn að því að raunverulegur kostnaður vegna skipulagsvinnu og vegna útgáfu framkvæmdaleyfis sé að fullu greiddur.
5. gr.
Gjaldskrá þessi sem er samþykkt á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar 19. nóvember 2025, er sett með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1504/2024.
Skagafirði, 9. desember 2025.
Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 23. desember 2025