Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalvíkurbyggð

Málaflokkur

Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

8. desember 2025

Útgáfudagur

22. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1432/2025

8. desember 2025

GJALDSKRÁ

Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar.

1. gr. Vatnsgjald.

Hafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign ber að greiða af henni árlegt vatnsgjald til Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar og skal það vera eftirfarandi:

  1. Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 6.163 kr. pr. íbúð og 226 kr. pr. fermetra húss.
  2. Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 18.868 kr. pr. eign og 249 kr. pr. fermetra húss.
  3. Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.
  4. Álagning skv. a-, b- og c-lið skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægri en 0,1% af fasteignamati allra húsa og lóða.

2. gr. Gjalddagar.

Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist vatnsgjaldið með fasteignasköttum.

3. gr. Aukavatnsgjald.

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota vatn til annars en heimilisþarfa, greiða aukavatnsgjald sem hér segir:

Aukavatnsgjald Kr./m³
fyrstu 100.000 m³ 39
100.000 - 250.000 m³ 35
eftir 250.000 m³ 32

Aukavatnsgjald skal innheimta samkvæmt mæli sem Vatnsveita Dalvíkurbyggðar leggur til.

Önnur gjöld:

  a. Lokunargjald 25.800 kr.
  b. Útkall 40.000 kr.

Skráður notandi:

  1. er ábyrgur fyrir notkun og greiðslum
  2. skal tilkynna notendaskipti
  3. kostar breytingar á heimæðum sem nauðsynlegar eru vegna framkvæmda hans og greiðir fyrir þær.

Greiða skal fyrir hverja heimlögn sem tengir húsveitu við dreifikerfi Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar, umsókn skal greidd og samþykkt áður en til framkvæmda kemur.

Öllum umsóknum um heimlögn skulu fylgja teikningar af nýrri heimlögn og einnig ef um breytingar heimlagna er að ræða.

Greiða skal fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði húseiganda á dagvinnutíma, á útkall utan dagvinnutíma reiknast 55% álag á útkallsgjald.

4. gr. Mælaleiga.

Greiðendur aukavatnsgjalds skulu á tveggja mánaða fresti greiða mælagjald vegna leigu á vatnsmælum sem hér segir:

Stærð mælis Mælagjald í kr. á dag
að 32 mm 18
40 mm 18
50 mm 21
80 mm 50
100 mm 91

5. gr. Heimæðargjald.

Þvermál inntaks Inntaksgjald, kr. Yfirlengd, kr./m
25 mm 311.546 14.164
32 mm 450.008 14.164
40 mm 571.165 14.164
50 mm 761.553 14.164
63 mm 1.073.097 14.164
75 mm 1.523.105 14.164
90 mm 2.243.318 14.164

Yfirlengd reiknast af heimtaug sem er lengri en 20 metrar í lóð viðkomandi mannvirkis. Gjald fyrir heimæðar 110 mm og víðari greiðist samkvæmt reikningi. Heimæðargjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar (grunnur 2021) október 2025, 125,9 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu.

6. gr. Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds, en notandi, ef hann er annar en eigandi, ber ábyrgð á greiðslu aukavatnsgjalda og leigugjalda. Vatnsgjald og heimæðargjald nýtur aðfararheimildar skv. 9. gr. laga nr. 32/2004. Vatnsgjald og heimæðargjald, ásamt vöxtum og áföllum kostnaði, nýtur lögveðsréttar í fasteign eiganda næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Aukavatnsgjald og leigugjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum, má taka fjárnámi.

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 18. nóvember 2025 er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga.

Gjaldskráin gildir frá og með 1. janúar 2026. Jafnframt fellur brott gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar, nr. 1530/2024

Dalvíkurbyggð, 8. desember 2025.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 22. desember 2025

Tengd mál