Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykjavíkurborg
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Reykjavík
Undirritunardagur
17. ágúst 2026
Útgáfudagur
21. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 908/2026
17. ágúst 2026
SAMÞYKKT
fyrir heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar.
1. gr. Umboð.
Heilbrigðisnefnd er kjörin af borgarstjórn skv. 45. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og starfar með þeim hætti sem nánar er kveðið á um í samþykkt þessari, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 1020/2019, og eftir því sem lög mæla fyrir um.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur starfar í umboði heilbrigðisnefndar sbr. 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 49. laga nr. 7/1998 og skv. viðauka 2.2. við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar um embættisafgreiðslur framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
2. gr. Verksvið.
Heilbrigðisnefnd hefur eftirlit með að framfylgt sé ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og reglugerða samkvæmt þeim, samþykktum Reykjavíkurborgar á verksviði nefndarinnar og ákvæðum í öðrum lögum eða reglum sem nefndinni er falið að annast framkvæmd á. Heilbrigðisnefnd tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs hvað varðar verksvið hennar. Jafnframt hefur nefndin eftirlit með því að samþykktum og stefnumörkun sé fylgt.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur annast framkvæmd stefnu og verkefna og sér um samskipti við aðrar stofnanir borgarinnar.
3. gr. Verkefni.
Heilbrigðisnefnd fer m.a. með eftirtalin verkefni:
- Hefur eftirlit með og stuðlar að bættri framkvæmd mengunar-, hollustuhátta- og matvælamála í Reykjavík.
- Gefur út starfsleyfi, annast skráningar og sinnir eftirliti með starfsleyfis- og skráningarskyldri starfsemi í Reykjavík.
- Semur drög að heilbrigðissamþykktum sem lagðar eru fyrir borgarstjórn og staðfestar af ráðherra, s.s. samþykktir um úrgang, fráveitu, vatnsvernd, hundahald og kattahald, og hefur eftirlit með framkvæmd þeirra.
- Gerir tillögur til borgarráðs að gjaldskrám fyrir gjaldskylda þjónustu samkvæmt ákvæðum laga.
- Sinnir fræðslu og veitir leiðbeiningar til almennings og lögaðila.
4. gr.
Heilbrigðisnefnd skal ávallt í störfum sínum fylgja öllum stefnumarkandi og almennum samþykktum borgarstjórnar og borgarráðs.
Jafnframt framfylgir heilbrigðisnefnd m.a. eftirfarandi samþykktum í Reykjavík:
- Samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarkaupstaðar.
- Samþykkt um meðhöndlun úrgangs.
- Samþykkt um rotþrær.
- Samþykkt um skipulag og framkvæmdir í Elliðaárdal.
- Samþykkt um gæludýrahald.
- Samþykkt um takmörkun búfjárhalds og bann við lausagöngu búfjár.
- Samþykkt um hesthús og hesthúsahverfi.
- Samþykkt um hænsnahald í Reykjavík utan landbúnaðarsvæða.
- Samþykkt um búfjárhald.
- Samþykkt um kattahald.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur framfylgir eftirfarandi samþykkt í samvinnu við Dýraþjónustu Reykjavíkur.
- Samþykkt um hundahald.
5. gr. Skipan.
Heilbrigðisnefnd er skipuð sex fulltrúum, fimm kjörnum af borgarstjórn og einum tilnefndum af Samtökum atvinnulífsins, sbr. lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Varamenn eru kjörnir/tilnefndir með sama hætti. Borgarstjórn kýs formann heilbrigðisnefndar en nefndin kýs sér sjálf varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði falla jafnt í nefndinni. Kjörtímabil nefndarinnar er hið sama og borgarstjórnar.
Heilbrigðisnefnd getur í sérstökum tilfellum skipað undirnefndir, stýri- eða starfshópa til að fjalla um afmarkaða málaflokka eða verkefni í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um starfs- og stýrihópa. Slíkum nefndum og hópum skal setja erindisbréf þar sem skilgreind eru helstu verkefni og starfinu sett tímamörk. Tilkynna skal um skipan allra undirnefnda, stýri- og starfshópa til borgarráðs.
6. gr. Verkstjórn og verkaskipting.
Formaður heilbrigðisnefndar er í forsvari fyrir hana um stefnumótun og ákvarðanir hennar, eftir því sem við á, og hefur ásamt öðrum fulltrúum í nefndinni eftirlit með framkvæmd mótaðrar stefnu í málaflokknum. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ber ábyrgð á framkvæmd ákvarðana nefndarinnar í samræmi við skilyrði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, auk reksturs og stjórnsýslu heilbrigðiseftirlitsins, þ.m.t. að fjármál og starfsmannamál séu innan heimilda og í samræmi við stefnu borgaryfirvalda.
7. gr. Boðun funda og fundarsköp.
Heilbrigðisnefnd heldur að jafnaði einn fund í mánuði. Formaður getur boðað til aukafunda eftir þörfum. Komi fram ósk tveggja nefndarmanna um fund í nefndinni ber að verða við því. Fella má niður fundi í alls tvo mánuði að sumarlagi.
Formaður boðar til funda, ákveður dagskrá í samráði við framkvæmdastjóra og stýrir fundum nefndarinnar. Á dagskrá skulu m.a. tekin mál sem fulltrúar í nefndinni hafa óskað eftir að tekin verði þar fyrir, enda séu þau á verksviði hennar. Reglulegir fundir skulu boðaðir með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara, dagskrá skal fylgja fundarboði auk þess sem birta skal hana á opnum vef Reykjavíkurborgar ásamt fundargögnum. Rafræn boðun fundar og útsending fundargagna telst fullgild boðun. Aukafundi skal boða með a.m.k. sólarhrings fyrirvara ef því verður við komið.
Heimilt er að taka mál til meðferðar í nefndinni þótt ekki sé það tilgreint á útsendri dagskrá en skylt er þá að fresta afgreiðslu þess til næsta fundar sé þess óskað. Um fundarsköp fer eftir samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 1020/2019, eftir því sem við á.
Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur skal sitja fundi heilbrigðisnefndar með málfrelsi og tillögurétt. Fulltrúi Umhverfis- og orkustofnunar og forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eiga rétt til setu á fundum heilbrigðisnefndar. Umhverfis- og skipulagsráð, sem gegnir hlutverki náttúruverndarnefndar Reykjavíkurborgar á rétt á að tilnefna einn fulltrúa í nefndina til viðbótar en hann hefur ekki atkvæðisrétt við afgreiðslu mála. Jafnframt hefur sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs rétt til setu á fundum nefndarinnar. Þá getur heilbrigðisnefnd boðað til fundar einstaka starfsmenn Reykjavíkurborgar, sem og aðra þá sem hún telur þörf á hverju sinni.
8. gr. Fundaskipulag og ritun fundargerða.
Nefndarfundur skal að jafnaði haldinn fyrir luktum dyrum og er þá óheimilt að greina opinberlega frá ummælum sem fram koma hjá einstökum fundarmönnum. Heilbrigðisnefnd skal halda gerðabók og senda eftirrit fundargerða til borgarráðs jafnóðum. Um ritun fundargerða fer eftir leiðbeiningum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um ritun fundargerða sveitarstjórna, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga, sbr. 15. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 1020/2019, og verklagsreglum skrifstofu borgarstjórnar um fundargerðir nefnda og ráða Reykjavíkurborgar.
Umhverfis- og skipulagssvið leggur nefndinni til fundarritara. Í upphafi árs skal kynna fundadagatal nefndarinnar. Þar komi m.a. fram tímasetning funda til undirbúnings starfs- og fjárhagsáætlunar og yfirferðar ársfjórðungsuppgjöra, ásamt tímasetningu opinna funda og samráðsfunda með hagsmunaaðilum, eftir því sem við á.
9. gr. Samráð.
Heilbrigðisnefnd ber ábyrgð á upplýsingamiðlun og samráði við íbúa, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila sem tengjast verkefnum nefndarinnar. Auk lögbundins samráðs skal nefndin leita umsagna eða annars samráðs þegar við á og efni mála gefur tilefni til. Við undirbúning veigamikillar stefnumörkunar til langs tíma skal leggja fram í nefndinni sérstaka áætlun um hvernig haga á samráði við stefnumótun.
10. gr. Fjármál.
Starfsáætlun og fjárhagsáætlun heilbrigðisnefndar er hluti af starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagssviðs. Framkvæmdastjóri leggur fram starfs- og fjárhagsáætlanir til kynningar í nefndinni.
11. gr. Ráðningar.
Heilbrigðisnefnd ræður framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að fenginni tillögu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, til fimm ára í senn. Framkvæmdastjóri ræður heilbrigðisfulltrúa.
12. gr. Fullnaðarafgreiðslur.
Um embættisafgreiðslur framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fer skv. viðauka 2.2 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 1020/2019.
Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ber, fyrir hönd heilbrigðisnefndar, ábyrgð á daglegum rekstri heilbrigðiseftirlitsins, svo sem ákvörðunum um ráðningu heilbrigðisfulltrúa, vinnslu umsagna um fagleg málefni og annarri umsýslu eftir því sem við á.
Framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er heimilt að taka eftirfarandi ákvarðanir í stað heilbrigðisnefndar eftir því sem nánar er tilgreint í þessari grein samkvæmt heimild í 2. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, og 2. mgr. 48. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998:
- Ákvörðun um útgáfu starfsleyfis og skráningu fyrir atvinnurekstur sem er talinn upp í IV. viðauka við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, X. viðauka við reglugerð um hollustuhætti, nr. 941/2002, og viðauka við reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur, nr. 830/2022, samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
- Ákvörðun um útgáfu starfsleyfis og skráningu til þeirra sem framleiða eða dreifa matvælum og matvælasnertiefnum í samræmi við ákvæði 9. og 20. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
- Ákvörðun um endurskoðun og breytingu starfsleyfis skv. 2. mgr. 6. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
- Ákvörðun um útgáfu tóbakssöluleyfis skv. 11. mgr. 8. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002.
- Ákvörðun um útgáfu leyfis til hænsnahalds skv. 2. gr. samþykktar um hænsnahald í Reykjavík, utan skipulagðra landbúnaðarsvæða, nr. 815/2014.
- Ákvörðun um álagningu dagsekta og upphæð þeirra skv. 1. mgr. 61. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 30. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.
- Ákvörðun um stöðvun eða takmörkun á starfsemi til bráðabirgða á grundvelli 63. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Framkvæmdastjóri gefur skrifstofu borgarstjórnar umsagnir um rekstrarleyfi veitinga- og gististaða skv. d-lið 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, tækisfærisleyfi og tímabundin áfengisleyfi, í umboði heilbrigðisnefndar, samkvæmt heimild í 2. mgr. 59. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 1020/2019, og 2. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. ákvæði í a-lið 1. gr. viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 1020/2019.
Framkvæmdastjóri getur ávallt vísað málum skv. 3. mgr. til afgreiðslu heilbrigðisnefndar. Ef ætla má að aðili máls muni ekki sæta niðurstöðu framkvæmdastjóra skal framkvæmdastjóri vísa málinu til afgreiðslu heilbrigðisnefndar.
Afgreiðslur framkvæmdastjóra skv. 3. mgr. skulu lagðar fram til kynningar á næsta reglulega fundi heilbrigðisnefndar.
13. gr. Málsmeðferð.
Við undirbúning og afgreiðslu mála skal gæta að málmeðferðarreglum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Aðili getur óskað frekari rökstuðnings, skv. 21. og 22. gr. stjórnsýslulaga. Beri aðili fram kvörtun skal eftir því sem við á leiðbeina viðkomandi um réttarstöðu sína, kæruleiðir og annað sem lýtur að málsmeðferð.
Rísi ágreiningur milli heilbrigðisnefndar og sveitarstjórna um framkvæmd laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, skal vísa málinu til fullnaðarúrskurðar ráðherra. Sama gildir um ágreining milli Umhverfis- og orkustofnunar og heilbrigðisnefnda um framkvæmd laganna.
Um hæfi kjörinna fulltrúa og starfsmanna vísast í samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Samþykkt þessi tekur þegar gildi og fellur þá jafnframt úr gildi samþykkt fyrir heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar frá 20. september 2022.
Reykjavík, 17. ágúst 2026.
F.h. heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar,
Tómas Guðberg Gíslason,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
B deild — Útgáfudagur: 21. ágúst 2026