Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Undirritunardagur

24. mars 2025

Útgáfudagur

25. mars 2025

Leiðréttingar

27. maí 2025

Fylgiskjal 3 lagfært, reglugerð ESB 2024/2795 birt í stað 2023/1114.

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 12/2025

24. mars 2025

AUGLÝSING

um birtingu á tiltekinni ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og ESB-gerðum á sviði fjármálaþjónustu sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn.

Eftirtaldar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér að tilteknar reglugerðir á sviði fjármálaþjónustu eru teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. auglýsingu í C‑deild Stjórnartíðinda nr. 31/1993 þar sem samningurinn var upphaflega birtur:

  1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 291/2024 frá 6. desember 2024, sjá fylgiskjal nr. 1 með auglýsingu þessari. Tekin er upp eftirtalin reglugerð, með aðlögunum:

    1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1623 frá 31. maí 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 575/2013 að því er varðar kröfur vegna útlánaáhættu, leiðréttingaráhættu vegna útlánavirðis, rekstraráhættu, markaðsáhættu og úttaksgólf, sjá fylgiskjal nr. 2 með auglýsingu þessari.
  2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 292/2024 frá 6. desember 2024. Tekin er upp eftirtalin reglugerð:

    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2795 frá 24. júlí 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar framkvæmdardagsetningu krafna um eiginfjárgrunn vegna markaðsáhættu, sjá fylgiskjal nr. 3 með auglýsingu þessari.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 291/2024 og þær reglugerðir sem að framan greinir eru birtar sem fylgiskjöl með auglýsingu þessari. Birtingin er liður í undirbúningi þess að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fyrir Alþingi lagafrumvörp til innleiðingar á viðkomandi reglugerðum í íslenskan rétt, með þeim aðlögunum sem gerðar hafa verið við upptöku þeirra í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Sama ákvörðun og reglugerðir verða jafnframt á síðara stigi birtar í EES‑-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. mars 2025.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Gunnlaugur Helgason.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 25. mars 2025

Tengd mál