Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Garðabær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Garðabær

Undirritunardagur

9. september 2026

Útgáfudagur

9. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 969/2026

9. september 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 16. apríl 2026 eftirfarandi: 

Suðurhraun 6 og 10 – deiliskipulagsbreyting.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

  Grunnflötur húsa verði 60% af flatarmáli lóðar í stað 50%.
  Heimilt er að hafa sameiginlega aðkomu að aðliggjandi lóðum.
  Heimilt er að samnýta bílastæði á aðliggjandi lóðum.
  Ákvæði um að bílastæði skulu að jafnaði vera götumegin við hús og ákvæði um bindandi byggingarlínur fellt út.
  Hámarkshæð frá gólfplötu jarðhæða í mæni verður 9,8 m.
  Ákvæði um hæð þakbrúnar er því fellt út.
  Í grein 2.1.4 Frágangur lóða bætist við eftirfarandi: Breidd kvaðar um gróðurbelti innan lóðar númer 10 skal ná að húshlið þar sem byggingarreitur færist að götu. Ef gafl sem snýr að götu verður gluggalaus skal hugað vel að útliti hans og yfirbragði t.d. með uppbroti í efnisvali, hávöxnum trjátegundum, klifurgróðri eða listaverki.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

Garðabæ, 9. september 2026.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 9. september 2026

Tengd mál