Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Grímsnes- og Grafningshreppur

Undirritunardagur

23. júní 2026

Útgáfudagur

7. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 772/2026

23. júní 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna frístundabyggðar F7 í landi Króks.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 23. júní 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032, sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. nóvember 2025.

Í breytingunni felst leiðrétting á afmörkun frístundabyggðar F7 í landi Króks. Svæðið stækkar um rúmlega 6 ha og verður um 290 ha eftir breytingu.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 23. júní 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2026

Tengd mál