Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli

Undirritunardagur

5. júní 2023

Útgáfudagur

19. júní 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 621/2023

5. júní 2023

REGLUGERÐ

um gildistöku reglugerðar (ESB) 2022/709 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2022, frá 9. desember 2022, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/709 frá 6. maí 2022 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingum er varða matvæli og vísar til þroskunar eða heilbrigðis barna. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 26. janúar 2023, bls. 132.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 5. júní 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. júní 2023

Tengd mál