Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Þingeyjarsveit
Málaflokkur
Skipulagsmál, Þingeyjarsýslur
Undirritunardagur
5. maí 2026
Útgáfudagur
20. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 507/2026
5. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Þingeyjarsveit.
Deiliskipulag Laxárstöðvar.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti á fundi sínum 25. september 2025 deiliskipulag Laxárstöðvar.
Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina núverandi starfsemi vatnsaflsstöðvanna Laxárstöð I, II og III á svæðinu en ekki er gert ráð fyrir frekari uppbyggingu virkjananna. Virkjanir eru fullbyggðar og tekur deiliskipulag því til núverandi mannvirkja og þeirra óverulegu framkvæmda sem áætlaðar eru á svæðinu.
Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Þingeyjarsveit, 5. maí 2026.
Brynja Dögg Ingólfsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 20. maí 2026