Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hvalfjarðarsveit
Undirritunardagur
28. september 2026
Útgáfudagur
12. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1081/2026
28. september 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna almennra ákvæða fyrir skógræktar- og landgræðslusvæði.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 28. september 2026 breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. ágúst 2026.
Með breytingunni eru sett fram skýrari ákvæði fyrir ný skógræktar- og landgræðslusvæði með það að markmiði að veita sveitarstjórn betri yfirsýn og stjórn á skógrækt innan sveitarfélagsins.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 28. september 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 12. október 2026