Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Upplýsingar

Undirritunardagur

7. maí 2025

Útgáfudagur

9. maí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 491/2025

7. maí 2025

AUGLÝSING

um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 7. maí 2028.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 7. maí 2025.

Kristrún Frostadóttir.

Benedikt Árnason.

B deild - Útgáfud.: 9. maí 2025

Tengd mál