Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármálaeftirlitið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Tryggingar, Vátryggingar

Undirritunardagur

25. júní 2018

Útgáfudagur

9. júlí 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 689/2018

25. júní 2018

REGLUR

um tæknilega framkvæmdarstaðla er varða samræmdar útreikningsforsendur staðalreglunnar.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.

2. gr. Samræmdar útreikningsforsendur staðalreglunnar.

Samkvæmt 96. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal gjaldþolskrafa annaðhvort reiknuð eftir staðalreglu eða eigin líkani í samræmi við XVI. kafla laganna. Til að tryggja samræmdar útreikningsforsendur staðalreglunnar gefur Fjármálaeftirlitið út reglur sem byggjast á tæknilegum framkvæmdarstöðlum Evrópsku vátrygginga- og lífeyriseftirlitsstofnunarinnar (EIOPA).

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2011 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar skrár yfir héraðsstjórnir og staðaryfirvöld, en fara skal með áhættuskuldbindingar þeirra sem áhættuskuldbindingar gagnvart ríkjum í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 18-19.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2016 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar hlutabréfavísitölu sem notuð er vegna samhverfrar aðlögunar við útreikning gjaldþolskröfu með staðalreglu vegna hlutabréfaáhættu í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2016 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 91-93.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2017 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar aðlöguðu stuðlana til að reikna út gjaldþolskröfu fyrir gjaldmiðlaáhættu vegna gjaldmiðla sem bundnir eru við evru í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 94-95.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1800 frá 11. október 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar röðun lánshæfismats utanaðkomandi lánshæfismatsstofnana á hlutlægan kvarða lánshæfisþrepa í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1800 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 425-432.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. og 2. mgr. 101. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 25. júní 2018.

Unnur Gunnarsdóttir.

Rúnar Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 9. júlí 2018

Tengd mál