Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Útlendingar

Undirritunardagur

20. ágúst 2026

Útgáfudagur

21. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 905/2026

20. ágúst 2026

AUGLÝSING

um ákvörðun dómsmálaráðherra um breytingu á leiðbeiningum vegna beitingar 44. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

1. Forsendur

Dómsmálaráðherra hefur tekið ákvörðun um að uppfæra leiðbeiningar ráðuneytisins um beitingu 44. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 vegna tímabundinnar verndar í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu.

Frá því að ákvæðið var fyrst virkjað 4. mars 2022, í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu 24. febrúar 2022, hafa íslensk stjórnvöld miðað við að ákvörðun ráðherra um framkvæmd og gildissvið tímabundinnar verndar á grundvelli 44. gr. laganna sé í samræmi við ákvarðanir aðildarríkja Evrópusambandsins um tilskipun 2001/55/EB.

Í ljósi þróunar mála, framkvæmdar í nágrannaríkjum og ákvarðana Evrópusambandsins um frekari framlengingu tímabundinnar verndar til 4. mars 2028 og afmörkun á gildissviði hennar, hefur dómsmálaráðherra ákveðið að eftirfarandi leiðbeiningar skuli gilda við meðferð nýrra umsókna á grundvelli 44. gr. laga um útlendinga.

2. Tímabundin vernd í öðru ríki

Í framkvæmdarákvörðun ráðs Evrópusambandsins (ESB) 2025/1460 frá 15. júlí 2025 var áréttað að aðildarríki ættu að synja umsókn um dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar liggi fyrir að umsækjandi hafi þegar hlotið dvalarleyfi á sama grundvelli í öðru aðildarríki Evrópusambandsins. Þetta er í samræmi við dóm Evrópudómstólsins frá 27. febrúar 2025 í máli C-753/23.

Í kjölfar ákvörðunarinnar hafa allnokkur aðildarríki Evrópusambandsins gripið til aðgerða sem miða að því að takmarka réttindi eða synja umsóknum einstaklinga um dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar, hafi þeir þegar hlotið dvalarleyfi á sama grundvelli í öðru aðildarríki.

Til að tryggja að framkvæmd beitingar 44. gr. laga um útlendinga sé í samræmi við framkvæmd í nágrannaríkjunum skal Útlendingastofnun ekki veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins þegar viðkomandi hefur þegar gilt dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar samkvæmt tilskipun 2001/55/EB eða gilt dvalarleyfi á sambærilegum grundvelli í Danmörku eða öðru samstarfsríki Schengen þ.e. Noregi, Sviss eða Liechtenstein.

3. Brottför frá Úkraínu vegna herskyldu

Við meðferð nýrra umsókna á grundvelli 44. gr. laga um útlendinga skal jafnframt líta til þess hvort umsækjanda sé óheimilt að yfirgefa Úkraínu samkvæmt úkraínskum lögum vegna skuldbindinga gagnvart her landsins.

Tímabundin vernd skal ekki veitt einstaklingi sem yfirgefur Úkraínu eftir gildistöku þessara uppfærðu leiðbeininga og getur ekki sýnt fram á að hann hafi haft heimild úkraínskra stjórnvalda til að yfirgefa landið, í samræmi við þær skuldbindingar sem á honum hvíla samkvæmt úkraínskum lögum. Úkraínskir ríkisborgarar sem ekki sæta herskyldu kunna engu að síður að bera skyldur vegna herþjónustu, óháð aldri eða kyni.

Sönnunarbyrðin skal hvíla á umsækjanda. Einstaklingur skal sanna lögmæta brottför frá Úkraínu, svo sem með framvísun á brottfararstimpli í vegabréfi. Ef ekki er unnt að staðfesta lögmæta brottför frá Úkraínu skal umsækjandi framvísa opinberu skjali, á pappír eða rafrænu formi, sem staðfestir að á viðkomandi hvíli ekki skyldur gagnvart her landsins.

Markmið þessarar afmörkunar er að tryggja að beiting tímabundinnar verndar raski ekki getu Úkraínu til að verja sig gegn árásarstríði Rússlands.

4. Mat á umsóknum

Við meðferð umsókna samkvæmt 44. gr. laga um útlendinga skal fara fram einstaklingsbundið mat. Heimilt er að veita undanþágu frá 2. kafla auglýsingar þessarar enda eigi umsækjandi fjölskyldumeðlimi sem búsettir eru á Íslandi sem falla undir c-lið gildissviðs ákvörðunar ráðherra, sem birt var í leiðbeiningum ráðuneytisins í Stjórnartíðindum 11. mars 2022.

Leiðbeiningar þessar taka einungis til nýrra umsókna og hafa ekki áhrif á réttarstöðu þeirra einstaklinga sem þegar njóta tímabundinnar verndar hér á landi á grundvelli 44. gr. laga um útlendinga.

Leiðbeiningarnar hafa jafnframt ekki áhrif á rétt einstaklings til að sækja um alþjóðlega vernd samkvæmt lögum um útlendinga. Meta skal slíka umsókn sjálfstætt í samræmi við ákvæði laganna og alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins, þar á meðal regluna um bann við endursendingu.

Fyrri leiðbeiningar ráðuneytisins, sem birtar voru í auglýsingu ráðuneytisins nr. 55/2025 þann 2. janúar 2025  um beitingu 44. gr. laga um útlendinga, skulu gilda áfram að því marki sem þær samrýmast leiðbeiningum sem fram koma í auglýsingu þessari.

Dómsmálaráðuneytinu, 20. ágúst 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild — Útgáfudagur: 21. ágúst 2026

Tengd mál