Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
18. maí 2026
Útgáfudagur
19. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 8/2026
18. maí 2026
AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingum á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerðir öðlaðist gildi hér á landi með reglugerð nr. 503/2026 um (66.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/111 frá 13. janúar 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 1 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/278 frá 6. febrúar 2026 um breytingu á XIV. og XV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Argentínu og Moldóvu í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum og kjötafurðum af alifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 2 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/279 frá 6. febrúar 2026 um breytingu á XII. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færsluna fyrir Kanada í skránni yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af kímefnum úr dýrum af hestaætt til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 3 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/342 frá 10. febrúar 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 4 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/425 frá 19. febrúar 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 5 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/451 frá 23. febrúar 2026 um breytingu á XIII. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Botsvana í skránni yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af nýju kjöti af tilteknum hóf- og klaufdýrum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 6 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/491 frá 4. mars 2026 um breytingu á IV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Argentínu og Taíland í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum flokkum dýra af hestaætt til Sambandsins og um leiðréttingu á XIII. og XVIII. viðauka við hana að því er varðar færslurnar fyrir Paragvæ og Sameinuðu arabísku furstadæmin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af nýju kjöti af hóf- og klaufdýrum og tilteknum mjólkurafurðum úr dýrum af úlfaldaætt til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 7 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/515 frá 3. mars 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 8 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/520 frá 4. mars 2026 um breytingu á XIV. og XV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Argentínu og Bosníu og Hersegóvínu í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum og kjötafurðum af alifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 9 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/591 frá 12. mars 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 10 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/737 frá 23. mars 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 11 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/772 frá 26. mars 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 12 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2639 frá 18. desember 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 13 með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Svava Pétursdóttir.
C deild — Útgáfudagur: 19. maí 2026