Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
13. nóvember 2025
Útgáfudagur
28. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1251/2025
13. nóvember 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður, nr. 55/2022.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Við 1. tölul. 1. mgr. bætist nýr stafliður, f-liður, svohljóðandi: Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga, sem birt er á bls. 261–266 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83 frá 14. nóvember 2024.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Reglugerð skv. f-lið 1. tölul. 1. mgr. var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 3. október 2024, bls. 45-49.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 103. og 114. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 13. nóvember 2025.
F. h. r.
Gunnlaugur Helgason.
Sigríður Rafnar Pétursdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 28. nóvember 2025