Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 701/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1096/2008 um aukastörf akademískra starfsmanna Háskóla Íslands.
1. gr.
Heiti reglnanna skal vera: Reglur um aukastörf akademísks starfsfólks Háskóla Íslands.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglnanna:
- Í stað orðanna „akademískra starfsmanna“ í 1. mgr. koma orðin: akademísks starfsfólks.
- Í stað orðanna „akademískum starfsmönnum“ í 2. mgr. koma orðin: akademísku starfsfólki.
- Orðin „háskólakennara, þ.e.“ í 2. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „vísindamenn, fræðimenn og sérfræðinga“ í 2. mgr. koma orðin: rannsóknaprófessora, rannsóknadósenta og rannsóknalektora.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við heimild í 1. og 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2025.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025