Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjallabyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Fjallabyggð
Undirritunardagur
1. júlí 2026
Útgáfudagur
1. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 943/2026
1. júlí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi Fjallabyggð.
Vetrarbraut 8-10.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti 21. maí 2026 breytingu á deiliskipulaginu Þormóðseyri – athafnasvæði, vegna lóðarinnar Vetrarbrautar 8 -10. Breytingin felur í sér nýjan byggingarreit á suðausturhluta lóðarinnar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs húss undir baðstofu og tengda þjónustu. Málsmeðferð var í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Fjallabyggð, 1. júlí 2026.
Gísli Davíð Sævarsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 1. september 2026