Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Málaflokkur

Menntamál, Sjóðir og stofnanir

Undirritunardagur

1. nóvember 2025

Útgáfudagur

11. nóvember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 70/2025

1. nóvember 2025

LÖG

um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020 (námsstyrkir og endurgreiðslur).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Í stað orðanna „sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 3. gr.“ í 3. mgr. 12. gr. laganna kemur: þar sem slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar.

2. gr.

2. mgr. 14. gr. laganna orðast svo:

Námsstyrkur getur numið allt að 30% niðurfærslu af höfuðstól námslánsins ásamt verðbótum. Þrátt fyrir skilyrði 1. mgr. getur lánþegi áunnið sér 20% námsstyrk í lok hverrar námsannar, uppfylli hann skilyrði 1. eða 2. mgr. 13. gr. Lánþegi ávinnur sér 10% námsstyrk til viðbótar, ljúki hann námi skv. 1. mgr.

3. gr.

2. málsl. 1. mgr. 16. gr. laganna orðast svo: Vextir reiknast frá námslokum en vaxtakostnaður vegna námslána hvílir á ríkissjóði fram að þeim tíma.

4. gr.

1. mgr. 17. gr. laganna orðast svo:

Vextir af verðtryggðum lánum skulu bera sömu breytilegu vexti og kjör og endurlán ríkissjóðs til Menntasjóðs námsmanna hverju sinni að viðbættu föstu vaxtaálagi sem tekur mið af væntum afföllum af endurgreiðslu námslána. Vextir endurlána ríkissjóðs skulu miðast við þriggja ára vegið meðaltal ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa á markaði til fimm ára samkvæmt vaxtaferli hverju sinni, eða því sem næst ef fimm ára viðmið er ekki til á þeim tíma sem vextir eru ákvarðaðir.

5. gr.

1. mgr. 18. gr. laganna orðast svo:

Vextir af óverðtryggðum lánum skulu bera sömu breytilegu vexti og kjör og endurlán ríkissjóðs til Menntasjóðs námsmanna hverju sinni að viðbættu föstu vaxtaálagi sem tekur mið af væntum afföllum af endurgreiðslu námslána. Vextir endurlána ríkissjóðs skulu miðast við þriggja ára vegið meðaltal ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa á markaði til fimm ára samkvæmt vaxtaferli hverju sinni, eða því sem næst ef fimm ára viðmið er ekki til á þeim tíma sem vextir eru ákvarðaðir.

6. gr.

Í stað orðanna „einu ári“ í 1. mgr. 19. gr. laganna kemur: 18 mánuðum.

7. gr.

Á undan tilvísuninni „21. gr.“ í 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða III í lögunum kemur: 20. og.

8. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Lánþegar sem tekið hafa H-lán samkvæmt lögum þessum hafa heimild til að láta skilmálabreyta þeim lánum til samræmis við vaxtaviðmið skv. 1. mgr. 17. gr. og 1. mgr. 18. gr. Slík skilmálabreyting er ekki afturvirk gagnvart afborgunum af lánum sem fallið hafa í gjalddaga áður en vaxtaviðmið skv. 1. mgr. 17. gr. og 1. mgr. 18. gr. tóku gildi og gildir heimildin tímabundið til 1. apríl 2027.

9. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 2026, þó skulu 4. og 5. gr. öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 1. nóvember 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Logi Már Einarsson.

A deild — Útgáfudagur: 11. nóvember 2025

Tengd mál