Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fóður

Undirritunardagur

23. febrúar 2026

Útgáfudagur

13. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 244/2026

23. febrúar 2026

REGLUGERÐ

um (17.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1377 frá 15. júlí 2025 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar tilteknar kröfur um setningu á markað og innflutning á aukaafurðum úr dýrum og afleiddum afurðum sem eru ekki ætlaðar til manneldis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 227/2025 frá 24. október 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 168-184.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1379 frá 15. júlí 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar stafvæðingu skráahalds og fyrirmyndir að viðskiptaskjali og heilbrigðisvottorðum vegna tilflutnings á aukaafurðum úr dýrum frá takmörkunarsvæðum og vegna flutnings á óunnum húsdýraáburði. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 227/2025 frá 24. október 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 185-197.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 227/2025 og þeim takmörkunum sem leiða af I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 29. gr. a laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. febrúar 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

B deild — Útgáfudagur: 13. mars 2026

Tengd mál