Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Innanríkisráðuneytið (2011-2017)

Málaflokkur

Happdrætti, Getraunir

Undirritunardagur

28. desember 2015

Útgáfudagur

30. desember 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 126/2015

28. desember 2015

LÖG

um breytingu á ýmsum lögum um happdrætti og talnagetraunir (framlenging starfsleyfis).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLI Breyting á lögum um Happdrætti Háskóla Íslands,

nr. 13/1973, með síðari breytingum.

1. gr.

1. málsl. e-liðar 1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: Leyfi til að reka happdrættið má veita til 1. janúar 2034.

II. KAFLI

Breyting á lögum um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla-
og brjóstholssjúklinga, nr. 18/1959, með síðari breytingum.

2. gr.

1. málsl. 3. gr. laganna orðast svo: Heimild þessi gildir til 1. janúar 2034.

III. KAFLI

Breyting á lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna,
nr. 16/1973, með síðari breytingum.

3. gr.

1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:

Heimild þessi gildir til 1. janúar 2034.

IV. KAFLI

Breyting á lögum um talnagetraunir, nr. 26/1986, með síðari breytingum.

4. gr.

2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:

Heimild þessi gildir til 1. janúar 2034.

5. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 28. desember 2015.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Ólöf Nordal.

A deild - Útgáfud.: 30. desember 2015

Tengd mál