Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
11. maí 2026
Útgáfudagur
28. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 567/2026
11. maí 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Skálabrekka vestri, L229116, Lindarbrekkugata, Unnargata og Guðrúnargata, lega, stærð og fjöldi lóða.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem tekur til frístundabyggðar í Skálabrekku vestri. Breytingar eru m.a. gerðar á legu og stærð lóða á svæðinu auk þess sem þeim er fjölgað úr 21 í 23. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Samþykkt í sveitarstjórn 4. febrúar 2026.
Deiliskipulagsbreyting, Græntóftagata 4, L178418, gisting í flokki II.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Græntóftagötu 4, L178418. Breytingin felur í sér að heimilt verði að reka gististað í flokki II, gististað án veitinga, á lóðinni. Meðfylgjandi er samþykki allra aðliggjandi eigna.
Samþykkt í sveitarstjórn 1. apríl 2026.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 11. maí 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 28. maí 2026