Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Ríkisstjórn, Stjórnarráð Íslands
Undirritunardagur
26. nóvember 2025
Útgáfudagur
11. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 83/2025
26. nóvember 2025
FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt:
Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi forsetaúrskurð um breytingu á forsetaúrskurði nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands:
1. gr.
D-liður 2. tölul. 4. gr. orðast svo: Sjónstöðina.
2. gr.
5. tölul. 7. gr. orðast svo: Fjarskipti og netöryggi, þar á meðal:
- Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.
- Fjarskiptaþjónustu og gagnaflutninga.
- Fjarskiptaöryggi.
- Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
- Íslensk landshöfuðlén.
- Eftirlit með fjarskiptum.
- Rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.
- Ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta.
- Fjarskiptastofu og málefni úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.
3. gr.
Við n-lið 14. tölul. 8. gr. bætist: , þ.m.t. óperuna.
4. gr.
Við k-lið 2. tölul. 11. gr. bætist: , og netvarnir og netöryggi á sviði varnarmála.
5. gr.
Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 26. nóvember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild — Útgáfudagur: 11. desember 2025