Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Strandabyggð

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Strandasýsla

Undirritunardagur

17. desember 2025

Útgáfudagur

7. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1622/2025

17. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir stofngjöld fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Strandabyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Strandabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Strandabyggð og hreinsun rotþróa í Strandabyggð samkvæmt gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 808/2012 um fráveitur og meðhöndlun seyru í Strandabyggð.

2. gr

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Fráveitugjald skal nema 0,25% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

3. gr

Rotþróargjald fyrir hverja íbúð og sumarhús sem ekki er tengt fráveitu sveitarfélagsins skal vera árlega 18.745 kr. Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða 3.555 kr.

4. gr

Tengigjald fráveitu skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við fráveitu í eigu Strandabyggðar og skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og skal vera sem hér segir:

Tengigjald fráveitu 74.000 kr.

Miðað er við að lóðarhafi leggi frárennsli að lóðarmörkum samkvæmt fyrirmælum verkstjóra áhaldahúss Strandabyggðar.

5. gr

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

6. gr

Ákvörðun um fráveitugjald samkvæmt 2. gr. er tekin árlega af sveitarstjórn samhliða ákvörðun um álagningarstuðla fasteignagjalda. Önnur gjöld í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu grunnur 2021=100 og breytast samkvæmt henni 1. nóvember ár hvert. Gjöld fráveitunnar bera ekki virðisaukaskatt.

7. gr

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025 og staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 4. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, til þess að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um fráveitugjald og rotþróargjald í Strandabyggð, nr. 1740/2024.

Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025.

Strandabyggð, 17. desember 2025.

Þorgeir Pálsson sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026

Tengd mál