Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Borgarbyggð, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, Sameining sveitarfélaga

Undirritunardagur

5. mars 2026

Útgáfudagur

23. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 274/2026

5. mars 2026

AUGLÝSING

um staðfestingu innviðaráðuneytisins á sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í eitt sveitarfélag.

Með vísan til 124. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, tilkynnir ráðuneytið að sameining Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í eitt sveitarfélag hefur verið staðfest.

Kjósa skal níu fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags við almennar sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 16. maí 2026. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn hins sameinaða sveitarfélags hinn 31. maí 2026 og á sama tíma tekur sameiningin gildi.

Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, nr. 1213/2022, mun gilda fyrir hið sameinaða sveitarfélag þar til því hefur verið sett ný samþykkt. Heiti hins sameinaða sveitarfélags verður auglýst sérstaklega.

Íbúar sveitarfélaganna skulu vera þegnar hins sameinaða sveitarfélags. Hið sameinaða sveitarfélag skal taka yfir allt það land sem nú tilheyrir sveitarfélögunum tveimur. Eignir, skuldir, réttindi og skyldur sem tilheyra sveitarfélögunum skulu falla til hins sameinaða sveitarfélags. Skjöl og bókhaldsgögn beggja sveitarfélaga skulu afhent hinu sameinaða sveitarfélagi til varðveislu.

Sveitarstjórnir sveitarfélaganna tveggja kjósa sameiginlega þrjá fulltrúa í yfirkjörstjórn og þrjá til vara í stað yfirkjörstjórna þeirra sem kosnar voru í upphafi yfirstandandi kjörtímabils skv. 17. gr. kosningalaga, nr. 112/2021.

Innviðaráðuneytinu, 5. mars 2026.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 23. mars 2026

Tengd mál