REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/759
frá 30. mars 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran
og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/762 frá 30. mars 2026 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 26. júlí 2010 samþykkti ráðið ákvörðun 2010/413/SSUÖ (2) og 23. mars 2012 samþykkti ráðið reglugerð (ESB) nr. 267/2012 (3) um þvingunaraðgerðir gegn Íran.
2) Hinn 29. september 2025 samþykkti ráðið, í kjölfar endurupptöku refsiaðgerða Sameinuðu þjóðanna gagnvart Íran sem tengjast kjarnorkumálum í samræmi við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2231 (2015), ákvörðun (SSUÖ) 2025/1972 (4) sem breytti ákvörðun 2010/413/SSUÖ og kvað á um endurupptöku allra refsiaðgerða Sambandsins gagnvart Íran sem tengjast kjarnorkumálum sem höfðu verið stöðvaðar tímabundið eða þeim hætt samkvæmt sameiginlegu heildaráætluninni um framkvæmd.
3) Ráðið ákvað einkum að leggja aftur bann við beinni eða óbeinni afhendingu, sölu eða tilflutningi á vörum og tækni með tvíþætt notagildi, sem eru á skrá í I. viðauka við reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 (5), til notkunar í eða til hagsbóta fyrir Íran.
4) Hinn 20. maí 2021 samþykkti Sambandið reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/821 (6). Með þeirri reglugerð var reglugerð (EB) nr. 428/2009 felld niður.
5) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) nr. 267/2012 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (ESB) nr. 267/2012 er breytt sem hér segir:
1) Í stað 2. og 3. mgr. 2. gr. kemur eftirfarandi:
„2. Í I. viðauka skal tilgreina vörur og tækni, þ.m.t. hugbúnaður, sem eru hlutir með tvíþætt notagildi eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2021/821 (7)“, að undanskildum tilteknum vörum og tækni eins og tilgreint er í A-hluta I. viðauka við þessa reglugerð.
3. Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni, innan fjögurra vikna, um veittar heimildir í samræmi við reglugerð (ESB) nr. 2021/821, að því er varðar vörur og tækni, sbr. A-hluta I. viðauka við þessa reglugerð.
2) Í stað 2. mgr. 3. gr. kemur eftirfarandi:
„2. Lögbær stjórnvöld í því aðildarríki þar sem útflytjandinn hefur staðfestu skulu veita fyrrnefnda heimild vegna alls útflutnings sem heimildar er krafist fyrir samkvæmt ákvæðum þessarar greinar og skal hún vera í samræmi við ítarlegar reglur sem mælt er fyrir um í 14. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2021/821. Heimildin gildir í gervöllu Sambandinu.“
3) Viðaukunum er breytt í samræmi við viðaukann við þessa reglugerð.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 30. mars 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. PANAYIOTOU
(1) Stjtíð. ESB L, 2026/762, 31.3.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/762/oj.
(2) Ákvörðun ráðsins 2010/413/SSUÖ frá 26. júlí 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2007/140/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 195, 27.7.2010, bls. 39, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2010/413/oj).
(3) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 267/2012 frá 23. mars 2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010 (Stjtíð. ESB L 88, 24.3.2012, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2012/267/oj).
(4) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/1972 frá 29. september 2025 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran (Stjtíð. ESB L, 2025/1972, 29.9.2025, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2025/1972/oj).
(5) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 428/2009 frá 5. maí 2009 um að setja Bandalagsreglur um eftirlit með útflutningi, tilflutningi, miðlun og viðkomu hluta með tvíþætt notagildi (Stjtíð. ESB L 134, 29.5.2009, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2009/428/oj).
(6) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/821 frá 20. maí 2021 um að koma á reglum Sambandsins um eftirlit með útflutningi, miðlun, tæknilegri aðstoð, tilflutningi og flutningi hluta með tvíþætt notagildi (Stjtíð. ESB L 206, 11.6.2021, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2021/821/oj).
(7) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/821 frá 20. maí 2021 um að koma á reglum Sambandsins um eftirlit með útflutningi, miðlun, tæknilegri aðstoð, tilflutningi og flutningi hluta með tvíþætt notagildi (Stjtíð. ESB L 206, 11.6.2021, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2021/821/oj).
VIÐAUKI
Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/reg/2026/759/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.