Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

16. september 2025

Útgáfudagur

30. september 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1027/2025

16. september 2025

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

7.41  Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/1495 frá 18. júlí 2025 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.41.

8.32  Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/1494 frá 18. júlí 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.32.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 16. september 2025.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

B deild — Útgáfudagur: 30. september 2025

Tengd mál