Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar, Lyf
Undirritunardagur
6. júní 2025
Útgáfudagur
26. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 690/2025
6. júní 2025
REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1143/2019 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna „Sjúkratryggingar Íslands“ í 2. mgr. og sömu orða hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur í viðeigandi beygingarmynd: sjúkratryggingastofnunin.
- Í stað orðsins „taka“ í 2. mgr. kemur: tekur.
- Í stað orðanna „læknir eða tannlæknir“ í 2. mgr. kemur: heilbrigðisstarfsmaður sem hefur heimild til að ávísa lyfjum.
- Í stað orðsins „Lyfjagreiðslunefnd“ í 3. mgr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur í viðeigandi beygingarmynd: Lyfjastofnun.
- Í stað orðanna „43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994“ í 3. mgr. kemur: 2. tölul. 2. mgr. 66. gr. lyfjalaga nr. 100/2020.
- Á eftir orðunum „undanþága fyrir“ í 3. mgr. kemur: sbr. 1. málsl. 4. tölul. 2. mgr. 66. gr. lyfjalaga. Lyfjastofnun getur vísað afgreiðslu umsókna vegna lyfja sem veitt hefur verið undanþága fyrir til sjúkratryggingastofnunarinnar.
- Í stað orðanna „um lyfjagreiðslunefnd“ kemur: nr. 1414/2020 um verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku í lyfjum.
2. gr.
Í stað orðsins „ákvarða“ í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: ákvarðar.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Orðin „8. og 9. mgr.“ í 1. tölul. falla brott.
- Orðið „ríkisins“ í 3. tölul. fellur brott.
- 5. tölul. fellur brott.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „43. gr.“ í 1. mgr. kemur: 66. gr.
- Í stað orðsins „hafa“ í 1. mgr. kemur: hefur.
- Í stað orðanna „geta jafnframt“ í 5. og 6. mgr. kemur: getur jafnframt.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „43. gr.“ í 2. mgr. kemur: 66. gr.
- Orðin „og nær einnig til greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í hagkvæmustu pakkningum tiltekinna lyfjaflokka skv. 8. gr.“ í 1. tölul. 2. mgr. falla brott.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að takmarka greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði einstaklings, sem hefur verið samþykkt skv. 2. tölul. 2. mgr. 66. gr. lyfjalaga, við ákveðna skammtastærð sem fer umfram ráðlagðan hámarksskammt samkvæmt markaðsleyfi lyfsins hér á landi.
6. gr.
8. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
7. gr.
2. tölul. 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Vegna þeirra lausasölulyfja, með skráð greiðsluþátttökuverð í lyfjaverðskrá, sbr. ákvörðun um greiðsluþátttöku skv. 2. tölul. 2. mgr. 66. gr. lyfjalaga, sem ávísuð eru á tiltekin einstakling sem fengið hefur útgefið lyfjaskírteini, sbr. 12. gr.
8. gr.
Í stað orðanna „6. gr. reglugerðar um lyfjagreiðslunefnd, nr. 353/2013, með síðari breytingum“ í 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 2. mgr. 20. gr. reglugerðar um verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku í lyfjum, nr. 1414/2020.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar:
- Orðið „einstaklingsbundna“ fellur brott.
- Á eftir orðinu „sjúkratrygginga“ kemur: í undantekningartilvikum.
- Í stað „7. mgr. 7. gr.“ í 5. tölul. kemur: 12. gr.
10. gr.
Í stað orðsins „skulu“ í 3. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar kemur: skal.
11. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 25. gr., 1. mgr. 29. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008 og 9. mgr. 66. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, öðlast gildi 1. september 2025.
Heilbrigðisráðuneytinu, 6. júní 2025.
Alma D. Möller.
Sigurður Kári Árnason.
B deild - Útgáfud.: 26. júní 2025