Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Atvinnuréttindi, Iðnaðarmál
Undirritunardagur
15. október 2026
Útgáfudagur
29. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1146/2026
15. október 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 940/1999, um löggiltar iðngreinar.
1. gr.
Í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar, undir „vélvirkjun“ í upptalningu málm-, véltækni- og framleiðslugreina, fellur brott sérgreinin „kæli- og frystivélavirkjun, sérgrein“.
Við 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar, undir upptalningu málm-, véltækni- og framleiðslugreina, bætist við ný iðngrein: kæli- og frystivélavirkjun.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 3. mgr. 13. gr. laga um handiðnað, nr. 42/1978, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 15. október 2026.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 29. október 2026