Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Húsnæðismál, Grindavík, Fasteignir, Náttúruhamfarir
Undirritunardagur
2. júlí 2025
Útgáfudagur
7. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 43/2025
2. júlí 2025
LÖG
um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík og lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga (framlenging fresta).
Handhafar valds forseta Íslands
samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:
I. KAFLIBreyting á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar „1. apríl 2025“ í 1. og 2. málsl. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 1. janúar 2026.
II. KAFLIBreyting á lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, nr. 130/2024.
2. gr.
Í stað ártalsins „2025“ í inngangsmálslið 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: 2026.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 2. júlí 2025.
Kristrún Frostadóttir.
Þórunn Sveinbjarnardóttir.
(L.S.)
Benedikt Bogason.
Daði Már Kristófersson.
A deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2025