Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Veiði - friðun

Undirritunardagur

1. september 2025

Útgáfudagur

3. september 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 941/2025

1. september 2025

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum.

1. gr.

2. málsl. 5. tl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Árið 2025 er rjúpnaveiði heimil frá og með föstudögum til og með þriðjudögum innan hvers veiðisvæðis með eftirfarandi hætti:

a. Austurland 24. október – 22. desember
b. Norðausturland 24. október – 2. desember
c. Norðvesturland 24. október – 18. nóvember
d. Suðurland 24. október – 11. nóvember
e. Vesturland 24. október – 2. desember
f. Vestfirðir 24. október – 18. nóvember

Rjúpnaveiðar eru þó alltaf óheimilar á friðuðu svæði, sbr. 9. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 17. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 1. september 2025.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild — Útgáfudagur: 3. september 2025

Tengd mál